Innlent

Rann­sókn lög­reglu á Blöndu­ósi lokið: Tók lög­regluna 26 mínútur að mæta á staðinn

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Rannsókn lögreglunnar er lokið.
Rannsókn lögreglunnar er lokið. Vísir

Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang.

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu á Facebook.

Þegar árásarmaðurinn sá að gestir voru á heimilinu fór hann út úr húsinu og fór húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði hann alvarlega.

Að því loknu fór árásarmaðurinn inn í húsið og skaut eiginkonu hans í höfuðið, þar sem hún stóð inni í stofu. Hún lést samstundis.

Árásarmaðurinn með veiðihníf í vasanum

Rannsóknin leiddi í ljós að húsráðandi hafi náð tökum á árásarmanninum þar sem hann hafi verð að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Til átaka kom milli þeirra en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasanum. Átökin enduðu með því að árásarmaðurinn lét lífið.

Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök árásarmannsins var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.

Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínunnar og óskaði eftir aðstoð vegna árásarmannsins klukkan 5:27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögreglan var ekki kominn á vettvang fyrr en 5:53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.

Lögregla segir að rannsókn hafi ekki leitt í ljós hvað nákvæmlega hafi gengið árásarmanninum til. Hann hafi verið einn að verki, allsgáður og átt vinsamleg samskipti við árásarþola fyrir árásina.

Tvisvar hafi tilkynningar borist um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum, um tveimur vikum áður en hann lét til skarar skríða. Þar hafi hann meðal annars tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.

Haglabyssan skráð á gjaldþrota fyrirtæki

Hann er sagður hafa afhent lögreglu skotvopn sem skráð voru á hann og leitað sér heilbrigðisaðstoðar. Hinn 12. ágúst 2022 hafi hann hins vegar verið aftur kominn á Blönduós.

Haglabyssan sem notuð var við verknaðinn var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota fyrir fimmtán árum síðan. Fram kemur að þrjár byssur hafi enn verið skráðar á fyrirtækið, byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og loks haglabyssa af gerðinni Maveric M-88 sem enn er ófundin. 

Málið er komið á borð héraðssaksóknara og ætlar lögregla ekki að veita frekari upplýsingar vegna málsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×