Innlent

Appelsínugul viðvörun á norðanverðu landinu: Hætta á foktjóni

Máni Snær Þorláksson skrifar
Varað er við því að ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi séu á ferð um svæðið.
Varað er við því að ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi séu á ferð um svæðið. Vísir/Vilhelm

Appelsínugul viðvörun er nú í gildi vegna veðurs á norðanverðu landinu. Spáð er sunnan og suðvestan stormi á svæðinu.

Íbúar á öllu Norðurlandi og Ströndum, á Breiðafirði og á Vestfjörðum mega búast við 20-28 metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum við fjöll. Viðvörunin er í gildi út daginn og fram á nótt. Með kvöldinu er spáð éljum með takmörkuðu skyggni.

Varað er við því að aka um svæðin á ökutækjum sem eru ekki gerð fyrir veður og vind. „Getur verið varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi og hætt við foktjóni,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á norðanverðu landinu.Veðurstofa Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×