Kostulegar lýsingar Jakobs á verkahring nýs verkefnastjóra Snorri Másson skrifar 11. febrúar 2023 10:00 Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag á miðvikudag, þar sem hvaðeina markvert úr fjölmiðlaumræðu að undanförnu var til umræðu. Á meðal þess var atvinnuauglýsing Reykjavíkurborgar fyrir hinn svonefnda verkefnastjóra framtíðarinnar. Sjá má innslagið hér að ofan en viðtal við Jakob er strax í upphafi þáttar.
Jakob féllst ekki á þann skilning margra, að þetta starf geti ekki verið raunverulegt - og að flókið sé að réttlæta það. Þvert á móti er að hans sögn morgunljóst af starfslýsingunni að dæma, að um mikilvægt starf sé að ræða. Þannig blæs hann á þá gagnrýni sem fram hefur komið, að ráðið sé í svona stöðu í miðju ráðningabanni. Jakob Birgisson les upp starfslýsinguna. Uppistandarinn hefur starfað í skemmtanabransanum nú um árabil. Hann var gestur í Íslandi í dag, þar sem hann lagði einnig mat á ýmis önnur fréttamál í léttum dúr.Vísir/Sigurjón „Þetta er í rauninni mjög skýrt starf,“ segir Jakob. „Í starfslýsingu segir meðal annars: Á verkefnastofu er unnið eftir hugmyndafræði verkefnastjórnunar. Verkefnum er fylgt eftir frá upphafi til enda, þvert á verkþætti og ábyrgðarsvið fagskrifstofa.“ Jakob bendir á að þegar Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs hafi boðað ráðningabann hafi hann tekið fram að það gilti ekki á leikskólum, í frístund eða í nauðsynlegri velferðarþjónustu sem borgin þurfi að sinna. Af þessu megi ráða að verkefnastjóri framtíðarinnar sé í raun hluti af nauðsynlegri velferðarþjónustu. „Finnst þér það ekki vera velferðarmál, að verkefni séu unnin frá upphafi til enda? Ég bara spyr þig,“ segir Jakob. Sjá má fyrir sér að það geti reynst örðugt að gera grein fyrir atvinnu sinni gagnvart til dæmis tengdaforeldrum, ef starfstitill manns er verkefnastjóri framtíðarinnar. Það er ekki ólíkt því sem margir upprennandi uppistandarar kunna að lenda í; sé einstökum árangri ekki þegar til að dreifa má ætla að dæmigerðar óskastarfsgreinar tengdasona sé jafnan að finna á öðrum sviðum. „Ef fólk veit ekki hver maður er þegar maður er grínisti og maður segist vera grínisti, þá hugsar fólk ósjálfrátt: Þessi maður er lúser. Ef einhver er grínisti, þá bara veistu það,“ segir Jakob. Þetta sama gildir að sögn Jakobs líklega ekki um verkefnastjóra framtíðarinnar. Á meðal hlutverka verkefnastjóra framtíðarinnar er að vinna hlutina frá upphafi til enda, eins og segir í starfslýsingunni. „Finnst þér það ekki vera velferðarmál, að verkefni séu unnin frá upphafi til enda? Ég bara spyr þig. Hvernig heldurðu að þessi þáttur væri ef hann væri ekki unninn frá upphafi til enda?“ spurði Jakob.Vísir/Sigurjón
Reykjavík Rekstur hins opinbera Ísland í dag Stjórnsýsla Tengdar fréttir Leita að „verkefnastjóra framtíðarinnar“ í miðju ráðningarbanni Reykjavíkurborg auglýsir eftir verkefnastjóra framtíðarinnar. Auglýsingin hefur verið sögð óljós og borgarfulltrúi minnihlutans gagnrýnir ráðningu sem þessa í miðju ráðningarbanni. 8. febrúar 2023 07:01 „Við eigum ekki að hoppa á ódýrar tillögur Sjálfstæðisflokksins“ Sjálfstæðismenn í borgarstjórn leggja fram breytingatillögur á fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár sem sparar borginni 7,2 milljarða króna. Í tillögunum felst meðal annars frestun fjárfestinga, hagræðing í miðlægri stjórnsýslu og að minnka yfirbyggingu. Borgarstjóri segir tillögurnar „ódýrar“ og að ekki sé hægt að fækka starfsfólki öðruvísi en að skerða þjónustu. 6. desember 2022 13:11 Opinberir starfsmenn leiddu launahækkanir í fyrra Laun opinberra starfsmanna hafa hækkað mun meira en laun á almennum vinnumarkaði á síðustu árum og er það einkum launaþróunin á síðasta ári sem skýrir þennan mun. 28. apríl 2022 11:49 Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira
Leita að „verkefnastjóra framtíðarinnar“ í miðju ráðningarbanni Reykjavíkurborg auglýsir eftir verkefnastjóra framtíðarinnar. Auglýsingin hefur verið sögð óljós og borgarfulltrúi minnihlutans gagnrýnir ráðningu sem þessa í miðju ráðningarbanni. 8. febrúar 2023 07:01
„Við eigum ekki að hoppa á ódýrar tillögur Sjálfstæðisflokksins“ Sjálfstæðismenn í borgarstjórn leggja fram breytingatillögur á fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár sem sparar borginni 7,2 milljarða króna. Í tillögunum felst meðal annars frestun fjárfestinga, hagræðing í miðlægri stjórnsýslu og að minnka yfirbyggingu. Borgarstjóri segir tillögurnar „ódýrar“ og að ekki sé hægt að fækka starfsfólki öðruvísi en að skerða þjónustu. 6. desember 2022 13:11
Opinberir starfsmenn leiddu launahækkanir í fyrra Laun opinberra starfsmanna hafa hækkað mun meira en laun á almennum vinnumarkaði á síðustu árum og er það einkum launaþróunin á síðasta ári sem skýrir þennan mun. 28. apríl 2022 11:49