Þetta kemur fram í skriflegu svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu. Fréttablaðið greindi frá því um helgina að rannsókn lögreglunnar í Manchester í máli Gylfa væri lokið og það komið á borð saksóknara.
Embættið vildi ekki veita fréttastofu frekari upplýsingar að svo stöddu. Þá vildi embættið ekki gefa upp neins konar tímalínu um hvenær ákvörðun um hvort Gylfi verður ákærður mun liggja fyrir.
Gylfi var handtekinn á heimili sínu í Manchester 16. júlí 2021. Gylfi var þá liðsmaður Everton og kom fram í breskum fjölmiðlum nokkrum dögum síðar að 31 árs gamall leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hafi verið handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, og síðar sleppt gegn tryggingu.
Tekinn af leikmannalistum
Gylfi var nafngreindur í íslenskum fjölmiðlum 20. júlí 2021. Degi síðar birtust fréttir þess efnis að Gylfi harðneitaði þeim ásökunum sem bornar eru á hann. Þann 14. ágúst sama ár var greint frá því að Gylfi yrði áfram laus gegn tryggingu og hann settur í farbann.
Í lok ágústmánaðar var tilkynnt að Gylfi myndi ekki spila með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í undankeppni HM í Katar. Tveimur vikum síðar var leikmannahópur Everton tilkynntur og Gylfi var ekki þar á meðal. Í október var farbannið svo framlengt til 16. janúar 2022.
Þann 15. janúar 2022 birtist frétt á Vísi að rannsókn á máli Gylfa væri á lokametrunum var þar vísað til þess að í það skipti var farbannið yfir Gylfa aðeins framlengt um nokkra daga. Þegar uppi var staðið reyndist rannsóknin enn í fullum gangi og farbannið framlengt um þrjá mánuði til viðbótar.
Orðaður við Tyrkland
Síðastliðið vor var svo greint frá því að Gylfi væri meðal þeirra leikmanna sem Everton vildi losna við af launaskrá. Gylfi var einn þriggja sem félagið vildi losna við, allir með himinhá laun eða 250 þúsund pund á viku sín á milli. Það nemur 43 milljónum íslenskra króna sem leikmennirnir skiptu milli sín vikulega.
Farbannið var framlengt enn meir og í júní í fyrra lá það fyrir að samningur Gylfa hjá Everton yrði ekki framlengdur. Um svipað leiti var Gylfi orðaður við tyrkneska félagið Galatasaray og sögusagnir um að það hafi boðið honum 280 milljónir króna í laun á ári. Ekkert reyndist svo til í þessum sögusögnum.
Í júlí sást Gylfi í fyrsta sinn á almannafæri síðan hann var handtekinn. Hann mætti á leik Íslands og Ítalíu á Evrópumóti í fótbolta sem fór fram í Manchester. Þar fékk hann að fylgjast með Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, frænku sinni, sem spilar með íslenska landsliðinu.
Fjölskyldan segir brotið á mannréttindum Gylfa
Síðan síðasta sumar hefur lítið fengist upp gefið um stöðu mála hjá Gylfa. Lögregla hefur ekki viljað svara fyrirspurnum íslenskra fréttastofa og í október kallaði fjölskylda hans eftir aðstoð. Þetta gerði faðir Gylfa, Sigurður Aðalsteinsson, í viðtali á Vísi. Þar greindi hann meðal annars frá að sótt hafi verið um flutning á lögheimili Gylfa frá Bretlandi til Íslands. Fjölskylda hans hafi einnig leitað hjálpar hjá utanríkisráðuneytinu sem hefði ekki viljað beita þrýstingi í málinu.
„Það er alltaf reynt að framlengja farbannið. Maðurinn var tekinn í yfirheyrslu. Síðan hefur ekkert gerst,“ sagði Sigurður í samtali við fréttastofu í haust.
„Þetta er orðið að mannréttindabroti.“
Síðan þá hefur Njáll Trausti Friðbertsson, 1. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, sagst ætla að ræða mál Gylfa Þórs á fundi nefndarinnar. Þó gæti reynst erfitt fyrir íslensk stjórnvöld að reyna að beita sér fyrir máli sem sé til meðferðar í ríki, sem er ein af okkar nánustu vinaþjóðum.
Málið er nú, eins og áður segir, komið á borð saksóknara krúnunnar í Bretlandi og því ekkert annað hægt að gera en bíða og sjá hvort hann verði ákærður eða ekki.