Lazio valtaði yfir meistarana og stökk upp í þriðja sæti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. janúar 2023 21:39 Lazio vann afar öruggan sigur gegn AC Milan í kvöld. Danilo Di Giovanni/Getty Images Lazio vann afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Ítalíumeisturum AC Milan í stórleik nítjándu umferðar ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Það tók heimamenn í Lazio aðeins rétt tæpar fjórar mínútur að brjóta ísinn þegar Serbinn Sergej Milinkovic-Savic renndi boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Mattia Zaccagni. Zaccagni var svo sjálfur á ferðinni á 38. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystu Lazio og staðan var því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. 2-0 varð svo að 3-0 á 67. mínútu þegar Luis Alberto skoraði af miklu öryggi af vítapunktinum eftir að Pierre Kalulu gerðist brotlegur innan vítateigs. Felipe Anderson rak svo smiðshöggið á sigur Lazio þegar um stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma og niðurstaðan því öruggur 4-0 sigur heimamanna. Með sigrinum stökk Lazio úr sjötta sæti og upp í það þriðja. Liðið er nú með 37 stig eftir 19 leiki, einu stigi minna en AC Milan sem situr í öðru sæti. Þá má áætla að leikmenn og stuðningsmenn Napoli fagni einnig sigri Lazio því liðið heldur nú tólf stiga forskoti sínu á toppnum.
Ítalski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira