Real Madríd vann 2-0 sigur á Athletic Bilbao í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Eftir sigur Barcelona á Getafe þá varð Real að landa þremur stigum til að missa toppliðið ekki of langt frá sér. Líkt og svo oft áður kom Karim Benzema gestunum í Real yfir þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður.
Það stefndi í 1-0 sigur gestanna allt þangað til Toni Kroos bætti við öðru marki í þann mund sem venjulegur leiktími rann út. Lokatölur 2-0 og Real nú með 41 stig að loknum 17 leikjum í 2. sæti deildarinnar. Barcelona er á toppnum með 44 stig eftir jafn marga leiki.