Samstarf

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500 króna

Stóri flugeldamarkaðurinn
Stóri flugeldamarkaðurinn er með Facebook leik í gangi þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr.
Stóri flugeldamarkaðurinn er með Facebook leik í gangi þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr.

Vinadagurinn brast á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum í dag, miðvikudag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. 

Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis í kvöld. Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga síst hafa dvínað síðustu ár. Met var slegið í fyrra.

„Ég hef verið í flugeldabransanum í 33 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag," segir Rúnar.

10 ára afmæli Vinadagsins!

,,Þetta er í 10. skiptið sem við höldum vinsæla Vinadaginn og því verður allt tryllt þetta árið, engar hækkanir á verði, stærri sprengjur og mjög veglegur leikur í gangi á Facebook síðunni okkar.”

Vinadagurinn fyrir alla

„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló í gegn.

Í hittifyrra vorum við í fyrsta skipti með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26., 27. og 28. desember. Það er eins í ár, Vinadagurinn gildir til miðnættis í dag og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annarsstaðar enda ákváðum við að hækka ekki verðin milli ára, enn er hægt að kaupa á "vinaverði" núna á vefsíðunni okkar www.storiflugeldamarkadurinn.is.

Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 19, við Gullinbrú.

Við hvetjum alla til að taka þátt í stórskemmtilegum Facebook leik okkar þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr.“ segir Rúnar

Hægt er að taka þátt í leiknum hér. Dregið verður í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×