Fótbolti

Albert skoraði sigurmark Genoa gegn toppliðinu

Hjörvar Ólafsson skrifar
Albert Guðmundsson var á skotskónum í kvöld.
Albert Guðmundsson var á skotskónum í kvöld. Vísir/Getty

Albert Guðmundsson skoraði markið sem skildi liðin að þegar lið hans, Genona, fékk Frosinone í heimsókn í ítölsku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld. 

Mark Alberts kom um miðbik fyrri hálfleiks en meira var ekki skorað í leiknum og lyktaði leiknum þar af leiðandi meðe 1-0 sigri Genoa. 

Eftir þennan sigur hefur Genoa 30 stig líkt og Bari en liðin sitja í þriðja og fjórða sæti deildarinnar. Frosinone er aftur á móti á toppnum með 36 stig og Reggina er síðan í öðru sæti með 33 stig.

Tvö efstu liðin fara beint upp í A-deildina en liðin sem hafna í þriðja til áttunda sæti fara í umspil um þriðja og síðasta lausa sætið í deild þeirra bestu. 

Þetta var annað markið sem Albert skorar í þeim 16 deildarleikjum sem hann hefur spilað á yfirstandandi keppnistímabili. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×