Skoðun

Íslensk jól: fyrir alla eða bara suma?

Emma Ósk Ragnarsdóttir skrifar

Desember - mánuður fylltur af frosti, hálku, skammdegisþunglyndi og jú - jólum. Jólaseríur birta upp skammdegið og kakóið vermir frosna putta. Börnin telja niður dagana til jóla með ýmis konar dagatölum í formi sjónvarpsþátta, súkkulaðibita eða bóka, og fullorðna fólkið rífst um aðventuheimsóknir. 

Margir líta á aðventuheimsóknir sem kærkomna stund fyrir börn og kennara að eiga notalega samveru í kirkjunni. Sem barn hafði ég svipaðar skoðanir. Ég var skírð, fermd og fór í aðventuheimsóknir með vinum mínum og kennurum. Ég veit af eigin reynslu hversu kósí og kærkomið uppbrot á skóladeginum það var að fara í slíkar heimsóknir. Hins vegar veit ég líka að á meðan ég og „kristnu“ vinir mínir áttum notalegar stundir með piparkökum, kakó og jólalögum, voru vinir mínir sem voru ættaðir frá löndum eins og Tælandi og Egyptalandi látnir sitja upp á bókasafni. Þeir fengu ekki að upplifa hátíðleikann og eiga notalega stund með samnemendum og kennurum með sérstöku uppbroti á skóladeginum. Þetta voru vinir mínir þá, og þetta er það sem nemendur mínir geta eflaust átt von á eftir nokkur ár. 

Það er enginn að segja að börn ættu ekki að fara í aðventuheimsóknir - ef þau sjálf, vinir þeirra, foreldrar eða ættingjar vilja fara í aðventuheimsóknir þá er það bara frábært. En skólinn ætti ekki að sitja undir þeirri ábyrgð að fara í sérstakar aðventuheimsóknir með aðeins ákveðin hóp af nemendum meðan hinn hópurinn situr eftir. Það er nauðsynlegt að öll börn fái að upplifa að þau séu jafnsett öðrum í skólastarfinu. Að ekkert barn sé útilokað vegna trúar þess eða trúar foreldra þess. Þegar það er staðan þá fer betur á því að foreldrar og fjölskyldur sinni trúarlegu uppeldi barna sinna og að skólastarfið byggi á menntun þar sem öll börn fái að vera jöfn. 

Það hefur verið bent á að starfshættir skóla skulu mótast af kristinni arfleifð samkvæmt lögum. Rétt er þá að benda á að starfshættir skóla skuli einnig mótast af umburðarlyndi, kærleika, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. Getum við virkilega sagt að starfshættir skóla einkennist af þessum gildum ef tiltekinn hópur nemenda er útilokaður frá ákveðnum dagskrárlið í skólastarfi vegna mismunandi trúar? Hvað þá að huga að þeim stjórnarskrávörðu réttindum um trúfrelsi og að allir skulu njóta mannréttinda án tillits til þjóðernisuppruna, kynþáttar, skoðana eða jú - trúarbragða? 

Með því að fara ekki í aðventuheimsóknir er ekki verið að sækja að kristinni trú. Við erum að fylgja þeim gildum sem Ísland stendur fyrir (eða telur sig standa fyrir að minnsta kosti) sem eru umburðarlyndi, jafnrétti, kærleikur og umhyggja. Sem vill svo til eru þau gildi sem við ræktum líka á tímum þessarar hátíðar. Gleðilega hátíð! 

Höfundur er málefnastýra Uppreisnar - Ungliðahreyfingar Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×