Innlent

Friðfinnur Freyr er látinn

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Friðfinnur er nú látinn.
Friðfinnur er nú látinn. Aðsent

Friðfinnur Freyr Kristinsson, maðurinn sem leitað hefur verið að seinustu vikur, er látinn. Þessu greinir bróðir hans frá á Facebook síðu sinni. Hann segir ekkert saknæmt hafa átt sér stað.

Kolbeinn Karl Kristinsson, bróðir Friðfinns, segir bróður sinn hafa synt út á sjó.

„Við vitum því nú loksins fyrir víst að sundmaðurinn sjálfur stakk sér til sunds og synti á lignum sjó í fallegu veðri út í algleymið. Ekkert saknæmt átti sér stað og Friðfinnur hefur loksins fundið frið,“ skrifar Kolbeinn.

Hann segir leitina þó halda áfram en þessari ákveðnu óvissu sé lokið og það veiti fjölskyldunni ró.

„Við þökkum fyrir þann ómetanlega stuðning sem við höfum fengið og höldum áfram í vonina um að hann finnist,“ skrifar Kolbeinn.

Facebook færslu Kolbeins má lesa hér að neðan.

Færsla Kolbeins

Vegna Friðfinns.

IS (English below)

Við vorum hjá lögreglunni í dag sem hefur tekið saman öll myndbönd sem til eru af Friðfinni daginn örlagaríka og þar í kring.

Við vitum því nú loksins fyrir víst að sundmaðurinn sjálfur stakk sér til sunds og synti á lignum sjó í fallegu veðri út í algleymið. Ekkert saknæmt átti sér stað og Friðfinnur hefur loksins fundið frið.

Þó hann sé ekki fundinn og leitin haldi áfram þá er þessum kafla óvissunnar samt lokið og það veitir okkur ákveðna ró.

Við þökkum fyrir þann ómetanlega stuðning sem við höfun fengið og höldum áfram í vonina um að hann finnist.

EN

We visited the police today to view all videos that have been found off my brother arround the day of his dissapearance.

We now know that the swimmer went into the sea and swam in beautiful weather on calm sea into the abiss. There was no foul play.

Although he has not been found and the search continues this finding closes a chapter in the uncertainty, which brings us some closure.

We want to thank everybody for the tremendous support and goodwill we have received. The hope of finding Friðfinnur lives on.


Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×