Viðskipti innlent

Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar sent Landsvirkjun til yfirlestrar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hvammsvirkjun yrði fyrsta virkjunin í Þjórsá í byggð.
Hvammsvirkjun yrði fyrsta virkjunin í Þjórsá í byggð. Landsvirkjun

Orkustofnun hefur sent virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar í Þjórsá til umsækjandans, Landsvirkjunar, til yfirlestrar. Eitt og hálft ár er frá því Landsvirkjun sótti um virkjunarleyfið en umsóknin var send inn í júní árið 2021. Ári síðar, í júní 2022, auglýsti stofnunin umsóknina og gaf þeim sem málið varðar færi á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum með skriflegum athugasemdum.

Virkjunarleyfið var sent Landsvirkjun í síðustu viku, að sögn Kristjáns Geirssonar, verkefnisstjóra vatnsauðlinda hjá Orkustofnun. Endanleg útgáfa leyfisins verður birt eftir að viðbrögð eru komin frá umsækjanda. Komi engar athugasemdir frá honum verður virkjunarleyfið gefið út, að sögn Kristjáns.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í viðtali um Hvammsvirkjun í fyrra.Sigurjón Ólason

Þegar Landsvirkjun sótti um virkjunarleyfið í fyrra vonaðist forstjórinn, Hörður Arnarson, til þess í viðtali í frétt Stöðvar 2 að framkvæmdir gætu hafist árið eftir, það er á þessu ári. Það væri mat fyrirtækisins að nýja orku þyrfti inn í kerfið eigi síðar en á árunum 2025 til 2026. Eins og staðan væri í orkukerfinu þyrfti næsti virkjanakostur að vera á Suðurlandi, meðal annars út af takmörkunum í flutningskerfinu.

Í frétt Stöðvar 2 frá því í apríl í vor kom fram að ráðamenn Landsvirkjunar vonuðust til að geta hafið undirbúningsframkvæmdir fyrir þessa næstu stórvirkjun landsins með haustinu.

Virkunarleyfi er forsenda þess að Landsvirkjun geti sótt um framkvæmdaleyfi til viðkomandi sveitarfélaga. Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að Hvammsvirkjun hafi verið í orkunýtingarflokki rammaáætlunar frá árinu 2015. Hún sé í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár; Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Stöðvarhúsið verður neðanjarðar. Frárennslisskurðurinn sést hægra megin. Ofar sést Búrfell.Landsvirkjun

Mati á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar lauk í mars 2018, en þá gaf Skipulagsstofnun út álit á tveimur umhverfisþáttum af tólf. Úrskurður Skipulagsstofnunar á hinum tíu þáttunum frá árinu 2003 er í fullu gildi.

Á vef Landsvirkjunar segir ennfremur að Minjastofnun Íslands hafi gefið leyfi fyrir Hvammsvirkjun í nóvember 2021 og Fiskistofa í júlí 2022. Með henni hafi fylgt umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar og álit Veiðifélags Þjórsár.

Hvammsvirkjun yrði 95 megavött að stærð og áætlaði forstjóri Landsvirkjunar í fyrra að smíði hennar myndi kosta 300 til 350 milljónir dollara, sem þá var milli 40 og 45 milljarðar króna. Virkjunin myndi nýta bæði uppistöðulón og raflínur sem þegar eru til staðar á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í júní 2021 þegar Landsvirkjun sótti um virkjunarleyfið:

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í apríl í vor þegar framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar vonaðist til að hefja undirbúningsframkvæmdir með haustinu:


Tengdar fréttir

Breyttar áherslur í rekstri Landsvirkjunar og horft til aukinna fjárfestinga

Fjárfestingar Landsvirkjunar í aukinni raforkuframleiðslu munu nema meira en 100 milljörðum króna á næstu fjórum til fimm árum, að sögn Harðar Arnarsonar forstjóra. Bundnar eru vonir við að Orkustofnun gefi út leyfi fyrir Hvammsvirkjun fyrir lok mánaðarins. Ekki er lengur stefnt að því að greiða niður skuldir í sama mæli og síðustu ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×