Handgerður íslenskur Burrata
Frönsk og ítölsk matargerð er aðalsmerki Duck and Rose. Vinsælasti rétturinn frá opnun staðarins er Burrata ostur með kirsuberjatómötum, fíkjum, basilolíu og ristuðu súrdeigsbrauði en osturinn er íslenskur og er handgerður á Sauðárkróki.

„Við leggjum mikla áherslu á að útbúa matinn frá grunni og veljum besta mögulega hráefnið til þess,“ segir Margrét. Matseðillinn er mjög fjölbreyttur úrval af smáréttum, aðalréttum, pizzum og eftirréttum.
„Confit andarlæri hefur einnig alltaf trónað á toppnum og er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Þessa dagana er vinsælasti rétturinn sítrónu tagliatelle, með hörpuskel, tígrisrækjum, feykir osti, basil og hvítlaukskröns. Nú geri ég ráð fyrir að jólaréttirnir fari að taka yfir, heitreykta öndin á laufabrauði og rósagrafni laxinn fara gífurlega vel af stað,“ segir Margrét. Duck and Rose sé kominn í jólaskapið.
„Í ár erum við með marga jólasmárétti sem mér finnst frábært að panta nokkra og deila með góðum hóp. Við erum virkilega spennt fyrir því að bjóða upp á Styrju Caviar&Blinis í ár sem er fullkomið með kampavíni og dásamleg byrjun á góðri máltíð.“

Spennandi matseðill og lúxusbröns
„Við erum með bæði þriggja og fimm rétta seðil. Í þriggja rétta seðlinum erum við með rósagrafinn lax með rúgbrauðscrumble, dillkremi, fennel, gúrku og eplasalati í forrétt. Í aðalrétt er valette andabringa með rósakáli, beikoni, fíkjum, jarðskokkamauki og sætri trufflusósu og í eftirrétt er bökuð ostakaka með kirsuberjasósu og bökuðu hvítu súkkulaði.
Í fimm rétta seðlinum byrjum við á Caviar á Blini förum svo yfir í hátíðar kjúklingalifrar brulee svo er það rósagrafni laxinn, aðalrétturinn Valette Andarbringan og svo bakaða ostakakan. Alla jóla réttina er einnig hægt að fá staka hjá okkur,” segir Margrét.

Þá munu gestir njóta ljúfra tóna meðan þeir borða.
„Á aðventunni ætlar Bjartey Sveinsdóttir úr hljómsveitinni Ylju að spila ljúfa tónlist og auðvitað vel valin jólalög. Hún spilaði einnig hjá okkur í fyrra og fékk mikið lof fyrir frá matargestum,” segir Margrét og hvetur fólk til að fylgja Duck and Rose á Instagram og facebook. „Þar verður hægt að sjá hvaða daga Bjartey verður með okkur."
Lúxusbrönsinn frábær í jólapakkann
Duck and Rose býður upp á bröns alla laugardaga, sunnudaga og stórhátíðardaga, þar sem boðið er upp á úrval af brönsréttum og pönnukökum ásamt öðrum réttum. Lúxusbrönsinn er svo aðalrósin í hnappagatið.
„Þar færð þú brönsrétt að eigin vali, pönnukökur með berjum og botnlausa drykki í 2 klukkustundir, til dæmis mímósu, freyðivín, bjór, aperol spritz og Duck&Rose mule. Lúxusbrönsinn er fullkominn í jólapakkann það er hægt að nálgast gjafabréfin á heimasíðunni okkar,“ segir Margrét.

Smáréttir fyrir hópa í veisluþjónustu
„Við erum með veisluþjónustu með áherslu á smárétti og bruchettur sem henta smærri og stærri hópum. Veislurnar er hægt að skoða á heimasíðunni okkar og panta þar í gegn en velkomið að senda okkur tölvupóst og eða hringja ef spurningar vakna.”
