Erlent

Ein for­ystu­kvenna mæðranna á Maí­torgi látin

Kjartan Kjartansson skrifar
Tveir synir Hebe de Bonafini hurfu í tíð herforingjastjórnarinnar og aldrei spurðist til þeirra aftur. Hún tók höndum saman við hóp mæðra í sömu stöðu og hóf vikuleg mótmæli sem vöktu heimsathygli.
Tveir synir Hebe de Bonafini hurfu í tíð herforingjastjórnarinnar og aldrei spurðist til þeirra aftur. Hún tók höndum saman við hóp mæðra í sömu stöðu og hóf vikuleg mótmæli sem vöktu heimsathygli. AP/Jorge Saenz

Baráttukona sem átti þátt í að stofna samtökin Mæðurnar á Maítorgi sem kröfðust þess að fá að vita um afdrif fólks sem herforingjastjórn Argentínu lét hverfa er látin, 93 ára að aldri. Tveir synir hennar voru á meðal fórnarlamba stjórnarinnar. 

Hebe de Bonafini var ein þrettán kvenna sem hófu vikuleg mótmæli á Maítorgi fyrir utan forsetahöllina í Buenos Aires til þess að krefjast þess að herforingjastjórnin skilaði börnum þeirra sem öryggissveitir höfðu numið á brott í maí árið 1977. 

Áætlað er að um 30.000 manns hafi verið myrtir eða látnir hverfa í tíð herforingjastjórnarinnar á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Tveir synir Bonafini fundust aldrei og eru taldir hafa verið myrtir af stjórnvöldum.

Öryggissveitir tvístruðu fyrstu mótmælunum og rændu og myrtu Azucenu Villaflor, fyrsta leiðtoga þeirra, Þrátt fyrir það óx mótmælunum ásmegin. Konurnar tóku upp á því að vefja taubleyjum um höfuðið til merkis um horfin börn þeirra og hvítir klútar urðu að einkennistákni hreyfingarinnar, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Alberto Fernández, forseti Argentínu, lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna dauða Bonafini sem hann lýsti sem baráttukonu sem unni sér aldrei hvíldar.

Bonafini var þó ekki óumdeild. Eftir að herforingjastjórnin lagði upp laupana árið 1983 héldu mótmælin áfram og var hún í fararbroddi róttækari hreyfingar sem barðist fyrir kerfisbreytingum. Hún lýsti meðal annars yfir ánægju með hryðjuverkin í New York árið 2001 vegna hernaðaraðgerða vesturlanda. Þá sagði hún að Jóhannes Páll páfi annar færi til helvítis þar sem hann væri bersyndugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×