Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter Samúel Karl Ólason skrifar 11. nóvember 2022 14:59 Falskir reikningar á Twitter hafa valdið usla á undanförnum dögum. Getty/Jakub Porzycki Frá því auðjöfurinn Elon Musk tók við stjórn samfélagsmiðilsins Twitter hefur mikil óreiða ríkt þar. Musk varaði við því í nótt að gjaldþrot kæmi til greina en fyrr í gærkvöldi hafði hann sagt stöðu fyrirtækisins vera erfiða en margir af æðstu yfirmönnum fyrirtækisins hafa sagt upp á undanförnum dögum.
Musk var á fundi með starfsmönnum Twitter í nótt þegar sagði gjaldþrot mögulegt. Nú er Twitter hætt að selja notendum aðgang að bláu merki sem hingað til hefur falið í sér að Twitter ábyrgist að umræddur reikningur sé raunverulegur. Nokkrir dagar eru síðan opnað var á þessa áskriftarleið. Þessa áskriftarleið gátu notendur notað til að búa til reikning á Twitter, láta hann heita hvað sem er og greiða fyrir það átta dali á mánuði. Aragrúi notenda hefur búið til reikninga í nafni frægs fólks og jafnvel fyrirtækja. Tók korter að þykjast vera þingmaður Blaðamaður Washington Post sagði frá því að hann hefði í stofnað tvo nýja reikninga á Twitter í rannsóknarskyni. Annan notaði hann til að þykjast vera grínistinn Blaire Erskine en hinn reikningurinn var í nafni öldungadeildarþingmannsins Ed Markey en hann fékk leyfi þeirra beggja. Það tók hann minna en korter að búa til reikningana. Forsvarsmenn Twitter segja að reikningum þar sem notendur eru að þykjast vera aðrir verði lokað og viðkomandi aðilar bannaðir. Það er þó ekkert hjá Twitter sem kemur í veg fyrir að falskir reikningar séu stofnaðir og óljóst er hverjir eru að vakta nýja reikninga á samfélagsmiðlinum. Eitt af fyrstu verkum Musks eftir að hann tók við stjórn fyrirtækisins var að segja um helmingi af um 7.500 starfsmönnum Twitter upp. Hættu við að hætta við Í morgun var svo tilkynnt að Twitter myndi aftur byrja að nota merkinguna „Offical“ við reikninga mikilvægs fólks, fyrirtækja og stofnana. Byrjað var á því eftir að áðurnefnd áskriftarleið var opnuð en Musk tók þá ákvörðun að hætta við það. Nú virðist sem honum hafi snúist hugur aftur. To combat impersonation, we ve added an Official label to some accounts.— Twitter Support (@TwitterSupport) November 11, 2022 Sjá útlínur áætlunar um ofurforrit Í frétt Business Insider segir að þó óreiðan virðist ríkja innan veggja Twitter sé mögulega ekki allt eins og sýnist. Sé litið framhjá glundroðanum sjáist útlínur áætlunar Musks sem snúa að því að gera Twitter að svokölluðu „ofurforriti“. Musk hefur oft talað um að hann vilji gera Twitter að meira en samfélagsmiðli og að hann vilji búa til „allskonarforrit“ sem hann hefur kallað „X“. Meðal annars hefur Musk líkt hugmyndum sínum við ofurforritið WeChat í Kína. Forrit þetta myndi bjóða notendum upp á aðgang að afþreyingarefni, skilaboðaþjónustu, tölvuleikjum, bankaþjónustu, netverslun og ýmsu öðru. Musk hefur til að mynda sagt að hann vilji gera notendum kleift að birta lengri myndbönd á miðlinum og bjóða framleiðendum möguleika á því að hagnast á efni þeirra á Twitter. Þá fjallaði hann lauslega í gær um hugmyndir sínar um að veita bankaþjónustu á Twitter. Musk hefur reynslu af slíkri þjónustu en á árum áður kom hann að stofnun PayPal. New York Times sagði frá því í vikunni að Twitter hefði þegar lagt inn gögn varðandi umsóknir um stofnun greiðsluveitu. Einn sérfræðingur sem ræddi við Business Insider sagði ljóst að Musk væri með einhverja áætlun. Hann hefði í minnsta lagi skýra mynd í höfðinu um breytingarnar sem hann vildi gera á Twitter. Musk hefur sjálfur vakið athygli á því að þrátt fyrir óreiðuna á Twitter hafi notendum fjölgað og virni aukist. Í morgun sagði hann að notendur hefðu aldrei verið fleiri. Hit all-time high of active users today— Elon Musk (@elonmusk) November 11, 2022 Vaxtagreiðslur margfaldast Eins og frægt er orðið skrifaði Musk undir kaupsamning á Twitter í apríl en reyndi að komast undan því að kaupa fyrirtækið. Eftir margra mánaða deilur og dómsmál stóð Musk við samninginn og keypti fyrirtækið á 44 milljarða dala. Eftir það tók hann fyrirtækið af hlutabréfamarkaði. Við yfirtöku Musks tók fyrirtækið á sig um þrettán milljarða dala í skuldir. Sérfræðingar gera ráð fyrir því að vegna þessara skulda muni vaxtagreiðslur Twitter hækka úr um fimmtíu milljónum dala árið 2021 í rúman milljarð dala á næsta ári. Sjá einnig: Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks Ofan á það hafa auglýsendur dregið úr kaupum sínum á auglýsingum á Twitter og þá meðal annars vegna glundroða þar og þess að Musk hefur gefið í skyn að minna verði um ritstjórn á samfélagsmiðlinum. Musk hefur í kjölfarið unnið hörðum höndum að því að leita nýrra tekjulinda fyrir samfélagsmiðlafyrirtækið og sagði hann upp nærri því helmingi af um 7.500 starfsmönnum Twitter.
Twitter Bandaríkin Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Musk selur enn fleiri bréf í Tesla Elon Musk, ríkasti maður jarðar, seldi á dögunum hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla fyrir tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadala. 9. nóvember 2022 06:45 Ný áskriftarleið á Twitter í loftið Twitter kynnir formlega nýja áskriftarleið þar sem notendum miðilsins býðst að kaupa vottun á aðgangi sínum fyrir 8 bandaríkjadali, eða tæpar tólf hundruð krónur, á mánuði. 5. nóvember 2022 21:35 Þúsundum starfsmanna sagt upp Elon Musk hefur sagt upp rúmlega helmingi starfsmanna samfélagsmiðilsins Twitter. Musk er sagður hafa lagt niður heilu deildirnar, þar á meðal deild sem á að sporna gegn dreifingu falsfrétta og röngum eða villandi upplýsingum á miðlinum. 4. nóvember 2022 23:00 Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira
Musk selur enn fleiri bréf í Tesla Elon Musk, ríkasti maður jarðar, seldi á dögunum hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla fyrir tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadala. 9. nóvember 2022 06:45
Ný áskriftarleið á Twitter í loftið Twitter kynnir formlega nýja áskriftarleið þar sem notendum miðilsins býðst að kaupa vottun á aðgangi sínum fyrir 8 bandaríkjadali, eða tæpar tólf hundruð krónur, á mánuði. 5. nóvember 2022 21:35
Þúsundum starfsmanna sagt upp Elon Musk hefur sagt upp rúmlega helmingi starfsmanna samfélagsmiðilsins Twitter. Musk er sagður hafa lagt niður heilu deildirnar, þar á meðal deild sem á að sporna gegn dreifingu falsfrétta og röngum eða villandi upplýsingum á miðlinum. 4. nóvember 2022 23:00