Fyrirtækjarisi á sviði heilbrigðisþjónustu settur í söluferli
![Hreggviður Jónsson, sem stofnaði Veritas fyrir tveimur áratugum, er langsamlega stærsti hluthafi samstæðunnar sem rekur nokkur umsvifamikill fyrirtæki á sviði heilbrigðisþjónustu, meðal annars í lyfjadreifingu.](https://www.visir.is/i/6F8B24A81F755AE0D0D086B6CDA147A2BB81E41D8343771CBF91D4270B9CE09F_713x0.jpg)
Fyrirtækjasamstæðan Veritas, sem er í aðaleigu Hreggviðs Jónssonar og rekur fjölmörg umsvifamikil félög á sviði heilbrigðisþjónustu, verður brátt sett í formlegt söluferli sem kemur í kjölfar áhuga sem fjárfestingarsjóðir hafa sýnt fyrirtækinu síðustu mánuði. Forstjóri félagsins, sem veltir samtals nálægt 30 milljörðum króna, segir tímasetninguna núna til að láta reyna á sölu vera góða en innlent fjármálafyrirtæki hefur verið ráðið til að hafa umsjón með ferlinu. Verði af sölunni yrði um að ræða risaviðskipti á íslenskan mælikvarða.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/6B0671A0EFE24154EB11B003445FA37BC3962CABFB08CB2918C37147F75438EA_308x200.jpg)
Sjóður í Abú Dabí að kaupa hlut Íslendinga í Edition-hótelinu fyrir 22 milljarða
Einn af þjóðarsjóðum furstadæmisins Abú Dabí, ADQ, er langt kominn í viðræðum um að kaupa ríflega 70 prósenta eignarhlut félags í eigu íslenskra fjárfesta, sem er að stórum hluta lífeyrissjóðir, í Marriott Edition-lúxushótelinu í Austurhöfn.