Lætur utanríkisráðherrann Jenis av Rana gossa Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2022 11:49 Jenis av Rana hefur gegnt embætti utanríkis- og menntamálaráðherra í landsstjórn Færeyja frá árinu 2019. EPA Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur ákveðið að nýta heimild í lögum til að reka Jenis av Rana úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. Bárður segir að umburðarlyndi sitt í garð ráðherrans sé á þrotum.
Frá þessu er greint á vef Kringvarpsins í morgun, en brottreksturinn er þó háður heimild í lögum sem kveður á um að heimilt sé að leysa ráðherra frá embætti sé það samþykkt af meirihluta þingmanna. Bárður segir að frá því að hann tók við embætti lögmanns hafi hann reynt að vera diplómatískur og umburðarlyndur í sínum störfum. Jenis av Rana, sem er þingmaður færeyska Miðflokksins, hafi hins vegar í sumum tilvikum talað gegn stefnu Nielsen og gert honum erfitt fyrir í störfum sínum. Bárður á Steig Nielsen tók við embætti lögmanns Færeyja árið 2019.EPA Í yfirlýsingu sinni segir Bárður að eftir að Jenis hafi í gær beinlínis hvatt aðra ráðherra til að ganga gegn orðum lögmannsins sé umburðarlyndið einfaldlega á þrotum. Þrátt fyrir að vilja Jenis úr ríkisstjórninni segir Bárður Miðflokkinn enn hluta af ríkisstjórnarsamstarfinu, sem samanstendur einnig af Sambandsflokknum og Fólkaflokknum. Málið snúist eingöngu um framkomu ráðherrans. Áður en tilkynning Bárðar barst hafði Høgni Hoydal, formaður stjórnarandstöðuflokksins Tjóðveldis, boðað vantrauststillögu á hendur ráðherranum.
Færeyjar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira