Lífið

Bein útsending: Opnunarhátíð Iceland Airwaves á Grund

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fólk á öllum aldri er mætt til að fylgjast með tónleikunum.
Fólk á öllum aldri er mætt til að fylgjast með tónleikunum. Vísir/Vilhelm

Iceland Airwaves fer formlega af stað í dag, þó að Önnu Jónu son hafi verið með opnunartónleika í gær. Formlegur opnunarviðburður tónlistarhátíðarinnar er í uppáhaldi hjá mörgum. 

Í þetta skipti bjóða íbúar á Grund í heimsókn í eina klukkustund frá 10 til 11 og Vísir verður á staðnum í beinni útsendingu. Sycamore Tree og Júníus Meyvant munu koma þar fram. Guðni Th. forseti Íslands opnar formlega hátíðina. 

Klippa: Opnunarhátíð Iceland Airwaves á Grund

Airwaves fer fram dagana 3. til 5. nóvember.  Alla umfjöllun okkar um Iceland Airwaves hátíðina má finna HÉR á Vísi.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Dansað inn í veturinn með hádegis partýi á Prikinu

Áhugasamir dansarar geta glaðst yfir því að viðburðurinn Lunch Beat Reykjavík snýr aftur til borgarinnar í hádeginu á morgun með viðburði á Prikinu. DJ Margeir þeytir skífum og dansararnir Olga Maggý Erlendsdóttir og Rebekka Sól Þórarinsdóttir stýra dansgleðinni.

„Nú er ég meira að skrifa um persónulega hluti“

Ungstirnið Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, er ein af þeim upprennandi íslensku söngkonum sem koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Gugusar semur tónlistina sína alla sjálf ásamt því að pródúsera og fær innblásturinn víða. Blaðamaður hitti hana í kaffi og tók á henni púlsinn.

Ómetanlegt að hafa alltaf fengið pláss til að prófa sig áfram

Tónlistarkonan Una Torfa kemur fram á Iceland Airwaves í ár en þetta er bæði í fyrsta skipti sem hún kemur fram á hátíðinni sem og fer á hátíðina yfir höfuð. Una Torfa hefur endalausan áhuga á tengslum og leggur upp úr list sem er tilfinningaþrungin og heiðarleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.