Bayern með fullt hús stiga í gegnum dauðariðillinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. nóvember 2022 22:00 Eric Maxim Choupo-Moting skoraði seinna mark Bayern í kvöld. Alexander Hassenstein/Getty Images Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu 2-0 sigur gegn Inter Milan í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og liðið fer því með fullt hús stiga í gegnum dauðariðilinn. Benjamin Pavard kom heimamönnum í Bayern yfir eftir rúmlega hálftíma leik og staðan var því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleikhléið. Eric Maxim Choupo-Moting tryggði svo sigur Bayern með marki á 72. mínútu eftir stoðsendingu frá Alphonso Davies og niðurstaðan því 2-0 sigur heimamanna. Bayern fer því með fullt hús stiga í gegnum C-riðilinn, dauðariðil Meistaradeildarinnar í ár. Inter hafnar hins vegar í öðru sæti með tíu stig og er því á leið í 16-liða úrslit með Þýskalandsmeisturunum. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla