Lífið

Selena og Hail­ey settu sam­fé­lags­miðla á hliðina

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þær Selena Gomez og Hailey Bieber skinu skært á árlegum galaviðburði í Los Angeles um helgina. Þá skinu þær ennþá skærar þegar þær stilltu sér upp saman á ljósmynd á viðburðinum.
Þær Selena Gomez og Hailey Bieber skinu skært á árlegum galaviðburði í Los Angeles um helgina. Þá skinu þær ennþá skærar þegar þær stilltu sér upp saman á ljósmynd á viðburðinum. Getty/Jon Kopaloff

Það ætlaði allt um koll að keyra á samfélagsmiðlum um helgina þegar þær Selena Gomez og Hailey Bieber stilltu sér upp saman fyrir myndatöku á viðburði í Los Angeles. Með myndatökunni má segja að þær hafi þaggað niður orðróm um óvild þeirra á milli í eitt skipti fyrir öll.

Hailey er, eins og frægt er, eiginkona poppstjörnunnar Justins Bieber. Parið gifti sig árið 2018, sama ár og Justin sleit sambandi sínu við tónlistarkonuna Selenu Gomez sem hafði staðið yfir í átta ár með hléum.

Aðdáendur hafa verið sannfærðir um að Hailey hafi stolið Justin af Selenu. Þá hefur þeim stöllum gjarnan verið stillt upp á móti hvor annarri og þær sagðar óvinkonur, þrátt fyrir að þær hafi báðar ítrekað neitað fyrir það.

Það vakti því mikla athygli þegar Selena og Hailey voru báðar á gestalista árlegs galakvölds Kvikmyndaakademíusafnsins í Los Angeles á laugardaginn. Þær nýttu tækifærið til þess að grafa hina ímynduðu stríðsöxi í eitt skipti fyrir öll með vinalegri myndatöku á viðburðinum.

Það var ljósmyndarinn Tyrell Hamton sem náði þessu sögulega augnabliki á filmu. Selena og Hailey stóðu þétt upp við hvor aðra og brostu sínu breiðasta. Á einni myndinni héldu þær utan um hvor aðra og virtust perluvinkonur.

Stutt er síðan Hailey Bieber var gestur í hlaðvarpinu Call Her Daddy þar sem hún var spurð út í upphaf hjónabandsins og hvort hún hafi í raun „stolið“ Justin. Í þættinum vísaði Hailey þeim ásökunum alfarið á bug og sagðist ekki á neinum tímapunkti hafa verið með Justin á meðan hann hafi verið í öðru sambandi.


Tengdar fréttir

Hailey Bieber opnar sig um kynlífið og Selenu Gomez dramað

Fyrirsætan Hailey Bieber opnaði sig um kynlíf sitt og eiginmannsins Justin Bieber í hlaðvarpinu Call Her Daddy. Þar segist hún einnig hafa rætt málin með fyrrverandi kærustu kappans, Selenu Gomez, eftir að hún gekk í hjónaband með Justin. 

Bieber hjónin fögnuðu fjögurra ára brúðkaupsafmæli

Hjónin Justin og Hailey Bieber fögnuðu fjögurra ára brúðkaupsafmæli með því að senda fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum. Þau giftu sig í laumi árið 2018, tveimur mánuðum eftir að þau trúlofuðu sig, en héldu veislu ári síðar þar sem þau fögnuðu með vinum og fjölskyldu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.