Vísbendingar um að markaðurinn hafi „tekið alltof skarpa dýfu“
![„Flestir bjuggust við miklum hækkunum í kjölfar þess að Ísland færi í Emerging Markets vísitölu FTSE. Þær vonir brustu og braust út mikil taugaveiklun á markaði,“ segir greinandi Jakobsson Capital.](https://www.visir.is/i/146BA48CF9FF86B8D373005523103090F0F3EAF8F0CD054429D9C1361DCE1382_713x0.jpg)
Staðan á hlutabréfamarkaði hefur umturnast á síðustu tólf mánuðum. Fyrir um ári mátti sjá merki þess að markaðurinn væri búinn að ofrísa, meðal annars út frá þróun peningamagns í umferð, en núna eru vísbendingar um hið gagnstæða og verðmöt gefa til kynna að meirihluti félaga í Kauphöllinni séu verulega vanmetin, að sögn hlutabréfagreinenda.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/78EF39416A9C70E92DF524EC75F5AC00EEA52099558A3898A8DABCED7CB997CF_308x200.jpg)
Gjaldeyrisinnflæðið sem kom ekki þegar íslenskir fjárfestar voru teknir í bólinu
Umfangsmikil sala erlendra fjárfestingarsjóða, sem hafa að undanförnu byggt upp stöður í skráðum félögum hér á landi, til erlendra vísitölusjóða í aðdraganda þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja olli því að hlutabréfaverð flestra fyrirtækja í Kauphöllinni lækkaði verulega þegar markaðir lokuðu fyrir helgi.