Innlent

Ríkið kaupir Norður­húsið við Austur­bakka af Lands­bankanum

Árni Sæberg skrifar
Frá vinstri: Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Landsbankans, Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Frá vinstri: Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Landsbankans, Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Stjórnarráðið

Íslenska ríkið og Landsbankinn hafa undirritað samning um kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega sex þúsund fermetra byggingu sem er hluti af framkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn. Kaupverðið er um sex milljarðar króna. Þá mun ríkið einnig kaupa gamla Landsbankahúsið við Austurstræti.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að starfsemi utanríkisráðuneytisins verði komið fyrir í byggingunni, ásamt því að hluti hennar verði nýttur undir sýningar- og menningartengda starfsemi á vegum Listasafns Íslands. Þar verði einkum litið til samtímalistar.

„Töluverð tækifæri eru til staðar til að tengja fyrirhugað sýningarrými við þá menningarstarfsemi sem þegar fer fram í Hörpu og síðar Listaháskóla Íslands sem koma á fyrir í Tollhúsinu,“ segir í tilkynningunni.

Þröngur húsakostur

Í tilkynningunni segir að húsnæðiskostur Stjórnarráðsins sé háður miklum annmörkum - húsnæði ráðuneytanna sé sundurleitt, á mörgum stöðum og í mörgum tilfellum úrelt.

Þá hafi verið lögð áhersla á að ráðuneyti séu staðsett í námunda við hvert annað til að styrkja samstarf þeirra og skapa tækifæri til hagræðingar og samnýtingar á þjónustu. Áfram verði unnið að úrbótum í húsnæðismálum annarra ráðuneyta.

Í tilkynningunni segir að utanríkisráðuneytið muni missa stóran hluta húsnæðis síns sem það hefur haft á leigu. „Með flutningi utanríkisráðuneytisins í Norðurhús Austurbakka verður starfseminni komið fyrir á einum stað í sveigjanlegu og nútímalegu húsnæði sem verður nýtt með hagkvæmum hætti.“

Vel ætti að fara um starfsfólk utanríkisráðuneytisins í nýjum húsakynnum.

Borga arðinn til baka

Í tilkynningu segir að húsnæðið við Austurbakka verði keypt fyrir andvirði sérstakrar viðbótararðgreiðslu frá Landsbankanum til ríkissjóðs sem þegar hefur verið innt af hendi og kaupverðið nemi um 6 milljörðum króna miðað við fullfrágengið húsnæði. Ríkið er eini eigandi Landsbankans. 

Sem áður segir er um að ræða um sex þúsund fermetrar og því er fermetraverð um ein milljón króna á fermetra. Það er töluvert lægra fermetraverð en á öðrum fasteignum við Austurbakka.

Vilja finna gamla Landsbankahúsinu hlutverk

Í tilkynningu segir að samhliða kaupum ríkissins á hlut nýs húsnæðis Landsbankann hafi verið ákveðið að ganga til samninga um kaup ríkisins á gamla Landsbankahúsinu við Austurstræti. Sú bygging sé eitt af helstu kennileitum borgarinnar og menningarsögulega verðmæt sem slík. Það teljist því álitlegur kostur að byggingunni verði fundið verðugt hlutverk í íslensku samfélagi, til að mynda undir starfsemi dómstóla en endurskipuleggja þurfi húsnæðismál þeirra til lengri tíma.

Gamla Landsbankahúsið verður einnig keypt.Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Landsbankinn minnkar við sig með flutningi í nýbyggingu

Landsbankinn mun einungis nýta sextíu prósent af nýbyggingu sinni í miðborginni en selja eða leigja hinn hlutann. Byrjað verður að klæða bygginguna í næstu viku og vonast er til að flutt verði inn fyrir lok næsta árs.

Vill sjá menntastofnun í Landsbankahúsinu

Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur segir höfuðstöðvar Landsbankans vera betri kost á Austurhöfn heldur en aðra hótelbyggingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×