„Hvað er það versta sem gæti gerst?“ Helga Rakel Rafnsdóttir skrifar 28. september 2022 11:30 Án þess að hafa séð sýninguna og án þess að þykjast hafa hugmynd um það hvernig er að vera manneskja með fötlun þá langar mig að leggja nokkur orð í belg varðandi „Stóra Þjóðleikhúsmálið“. Þessum pistli er ekki beint að neinum persónulega og kannski er hann einhvers konar viðbragð við viðbrögðum. Ég hef aðeins setið í hjólastól í nokkra mánuði og veit ekki hvernig er að hafa til dæmis verið í hjólastól allt sitt líf. Ég hef ekki hugmynd um hvernig ég skilgreini mig, ég er bara Helga og ég get ekki lengur hreyft mig eins og áður. En ég hef örlitla innsýn í það hvernig er að geta ekki gert alls konar og ýmislegt sem flestum öðrum finnst sjálfsagt. Og ég hef líka örlitla innsýn inn í það hvernig er að vera svipt forréttindum og átta sig á því hvað man vissi lítið. Það er til dæmis hægara sagt en gert fyrir mig að pikka þessi orð á lyklaborðið, því máttur fingranna fer óðum þverrandi... en nóg um það! Annað sem ég hef innsýn í er listsköpun og heimildamyndagerð. Spurningin um það hver hefur rétt til að segja hvaða sögu er til dæmis afar mikilvæg og aktúel í heimildamyndagerð og ég þreytist seint á því brýna einmitt það fyrir nemendum. Sem sagt, ef þið voruð ekki búin að átta ykkur á því, þá er ég að réttlæta það að taka til máls um efnið. Ég hef meira að segja farið í gegnum leiklistarnám ef út í það er farið. Ok. Réttlætingu lokið! Það hefur verið stórkostlega áhugavert að fylgjast með umræðunni og viðbrögðum við "gagnrýni Nínu". í fyrsta lagi, þá getum við valið að vera þakklát fyrir að þessi gagnrýni var nákvæmlega eins og hún var, án hennar hefði boltinn ekki byrjað að rúlla. Í öðru lagi, þá var gott að Edda Björgvinsdóttir skyldi birta sín viðbrögð á síðunni "Menningarátökin" því annars er alls kostar óvíst að litli boltinn hefði orðið að flóðinu sem hann varð. Og svo komu fleiri viðbrögð, frá leikstjóranum Unni Ösp, frá Freyju Haraldsdóttur, frá Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur, Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur og Þorsteini Sturlu Gunnarssyni. Og svo var það spjallið góða í Lestinni á milli Ingu Bjarkar Margrétar Bjarnadóttur og Sólveigar Arnars. Ég met allar þessar manneskjur mikils og mæli með lestri og hlustun á þessu öllu saman. Það hefur verð áhugavert að sjá hvernig margir úr stétt leikhúslistafólks hafa pakkað í vörn. Ég hef nefnilega séð svona viðbrögð áður, fyrir ekki svo mörgum árum þegar umræður um skort á kvenhlutverkum, sögum kvenna og kvikmyndum leikstýrðum af konum átti sér stað. Þá pökkuðu margir karlkyns kollegar mínir í vörn og sögðu með hæðnistón: Hvers vegna mega karlar ekki segja sögur af konum?! Og við göluðum út í tómið: Vegna þess að þeir eru ekki konur! Þeir vita ekki hvað það er að vera kona! Og þá svöruðu þeir: Ok en þið eigið samt ekki að fá neina forgjöf! Og við svöruðum: Eruð þið að tala um ómeðvituðu forgjöfina sem þið hafið alltaf verið með?! Og þannig hélt þetta orðaskak áfram. Og sem betur fer var það ekki til einskis, loks fóru björgin að mjakast, risaeðlur að vakna til meðvitundar og glerþök að springa. Og margt hefur breyst á fáum árum þó nóg sé eftir og stöðugt þurfi að viðhalda því sem þó hefur áunnist. Ég man til dæmis eftir Eddunni árið 2011, þar sem konur klæddust jakkafötum og settu á sig skegg til að vekja athygli á því að það var ekki hægt að fylla leikkonuflokkana á Edduverðlaununum vegna þess að það voru engin kvenhlutverk. Þá varð Baltasar Kormákur svo pirraður yfir athyglinni sem þessar örfáu konur með skegg voru að fá, að hann hélt þrumuræðu í sjónvarpi allra landsmanna þar sem hann lofaði að gera leikna mynd í fullri lengd um heila áhöfn sem bara væru konur, í skipi sem strandaði og allar færust. Kannski ekki smekklegasta ræðan en Balti skipti seinna heldur betur um kúrs og hefur nú tekið þátt í þó nokkrum málþingum um stöðu kvenna í kvikmyndagerð auk þess sem hann hefur sýnt meðvitund um kynjahlutföll í verki, þegar hann hefur ráðið leikstjóra í verkefni. Baltasar má eiga það að hann var til í að sjá að sér, að breytast. Ég verð að segja að mér hefur þótt grátlegt að sjá konur sem börðust hart fyrir rétti kvenna til að segja sínar eigin sögur, bregðast af hæðni við því sem nokkrar konur með fötlun hafa farið fram á undanfarið, nefnilega því að fólk með fötlun fái að segja frá og túlka raunveruleika fatlaðra. Það getur verið skaðlegt að hópur sem er blindur á forréttindi sín segi sögur af öðrum hópum. Þetta staðfestir hið alræmda male-gaze sem er gegnsýrir menningu okkar svo hressilega að konur eru sjálfar haldnar því, alveg óvart. Hvað er það versta sem gerist ef við einsetjum okkur það að reyna til hins ítrasta að láta alltaf fólk með fötlun leika persónur með fötlun? Hvað er það versta sem gæti gerst? Í alvöru? Og hvað gæti áunnist? Hver yrðu margfeldisáhrifin út í samfélagið? Er ekki þess virði að velta þessu fyrir sér? Það er ekki þannig að það þurfi aðeins að byrja þessar breytingar á skólastigum, það er hægt að breyta á mörgum stöðum í einu. Það er svo miklu gjöfulla. Þetta svar heyrðist nefnilega oft frá karlkyns kollegum mínum í kvikmyndagerð: Það á að byrja á skólastiginu, ekki í Kvikmyndasjóði því þá takið þið pening af okkur! Nú munu án efa einhverjir saka mig um pólariseringu sem virðist vera hið mesta skammaryrði þessi dægrin. En getur verið að þessi blessaða pólarisering hafi bara verið hérna allan tímann - og að mörg þeirra sem sökuð eru um pólariseringu séu einmitt að reyna að uppræta hana? Ekki ætla ég að þykjast vita allt. En eitthvað veit ég þó. Og ég veit að ég var illa haldin af able-isma áður en ég veiktist af MND. Og líklega er ég það að einhverju leiti enn þá. Og ég veit líka að eftir að ég veiktist þá fór ég að sýna málfluttningi fatlaðra meiri áhuga. Man græðir svo asskoti mikið á því að hlusta. Um leið og ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem að sýningunni standa, þá vel ég líka að hlusta þegar Embla, Freyja, Kolbrún og Inga Björk taka til máls. Þær eru auðvitað ekki sama manneskjan en málfluttningur þeirra og baráttuþrek flytur fjöll. Höfundur er kvikmyndagerðarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikhús Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson Skoðun Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson skrifar Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Búum við í Norður-Kóreu? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrirframgreiðsla fyrir mannkosti Kári Stefánsson skrifar Skoðun Ekki okkar verðbólga Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Vangaveltur blóðmerabónda Heiðar Þór Sigurjónsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri! Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Lífshlaupið - sterkari og heilbrigðari þjóð Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Dauðarefsing gegn börnum Yousef Tamimi skrifar Skoðun Þarf íþróttamaður að vera áhrifavaldur til að ná árangri? Egill Gunnarsson skrifar Skoðun Fjárfestum í verðmætasköpun Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Tvennt getur verið rétt á sama tíma Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er aðildarumsókn að ESB eins og hvert annað hefðbundið dægurmálaþras? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Húsnæðislán eða húsnæðis-lán? Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Smámenni Snorri Sturluson skrifar Skoðun Um mannréttindi allra kvenna Tatjana Latinović skrifar Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Ef við erum öll almannavarnir – hver fer þá með forræðið? Jón Svanberg Hjartarson skrifar Sjá meira
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar
Skoðun Er aðildarumsókn að ESB eins og hvert annað hefðbundið dægurmálaþras? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson Skoðun