Hægir á innlausnum fjárfesta úr innlendum hlutabréfasjóðum
![Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rúmlega tólf prósent frá því að erlendir vísitölusjóðir komu inn á markaðinn í gegnum sérstakt lokunaruppboð í Kauphöllinni föstudaginn 16. september.](https://www.visir.is/i/78EF39416A9C70E92DF524EC75F5AC00EEA52099558A3898A8DABCED7CB997CF_713x0.jpg)
Fjórða mánuðinn í röð dró lítillega úr innlausnum fjárfesta úr íslenskum hlutabréfasjóðum en stöðugt útflæði hefur verið úr slíkum sjóðum, rétt eins og í öðrum verðbréfasjóðum, samtímis miklum óróa og verðlækkunum á mörkuðum á síðustu mánuðum. Frá því í lok febrúar, þegar innrás Rússa hófst í Úkraínu, nemur nettó útflæði úr verðbréfasjóðum samanlagt um 23 milljörðum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/953092D6A8B3193B56336E2C9AA389ABC60C95DC7E461E64F19D3279C4E3A4C1_308x200.jpg)
Undirbúningur sjóða sem seldu íslensku bréfin „langur og vel skipulagður“
Ótti innlendra fjárfesta um að það sé talsvert uppsafnað framboð af hlutabréfum sem ekki hafi náðst að selja á þeim verðum þegar erlendir vísitölusjóðir komu inn á markaðinn í uppboði eftir lokun Kauphallarinnar síðasta föstudag skýrir meðal annars það verðfall sem hefur orðið á bréfum flestra skráða félaga í vikunni.
![](https://www.visir.is/i/953092D6A8B3193B56336E2C9AA389ABC60C95DC7E461E64F19D3279C4E3A4C1_308x200.jpg)
Fjárfestar selt úr sjóðum fyrir um tólf milljarða eftir stríðsátökin í Úkraínu
Fjárfestar héldu áfram að selja sig út úr íslenskum verðbréfasjóðum í júlí þrátt fyrir að hlutabréfamarkaðir hafi rétt verulega úr kútnum í liðnum mánuði. Stöðugt útflæði hefur verið úr hlutabréfasjóðum og blönduðum sjóðum eftir innrás Rússa í Úkraínu í lok febrúar en samanlagt nemur það yfir tólf milljörðum króna frá þeim tíma.