Í forsetatilskipun Pútíns, eða þeim hlutum hennar sem eru lesanlegir, segir ekkert um hve marga til stendur að kveðja í herinn.
Leynileg klausa í forsetatilskipun Pútíns segir þó að varnarmálaráðuneytið eigi að kveðja allt að milljón manna í herinn. Það hefur rússneski miðillinn Novaya Gazeta, sem var nýverið gerður ólöglegur í Rússlandi, eftir heimildarmönnum sínum í Kreml.
Sjöunda málsgrein tilskipunar Pútins hafði verið afmáð þegar skipunin var opinberuð. Peskov var spurður út í klausuna leynilegu og sagði hann að hún sneri að þeim fjölda sem kveðja ætti í herinn. Vísaði hann svo í orð Shoigu um fjöldinn ætti að vera þrjú hundruð þúsund.
Rússneski miðillinn Meduza vitnar í viðtal við rússneskan aðmírál sem birt var í Rússlandi í dag. Hann fór nánar yfir út á hvað herkvaðningin gengur og sagði meðal annars að herinn væri að leita að mönnum sem hefðu þegar hlotið einhverja þjálfun sem muni koma að notum í Úkraínu og sérstaklega væri verið að leita að mönnum með reynslu af átökum.
Mögulega yrðu allt að 55 ára gamlir menn kvaddir í herinn en það færi eftir reynslu þeirra og þjálfun. Aðmírállinn sagði einnig að í rauninni væri ekkert þak á því hve margir yrðu kvaddir í herinn en að hvert sambandsríki hefði ákveðið lágmark.
Virðist mun umfangsmeiri
Herkvaðningin virðist mun umfangsmeiri en yfirvöld í Rússlandi hafa viðurkennt. Fregnir hafa borist af mjög svo umfangsmiklum herkvaðningum í fjarlægum og fátækari héruðum rússneska sambandsríkisins. Þá hafa einnig borist fregnir af því að margar af þeim rúmlega 1.300 mótmælendum sem handteknir voru í gær hafi verið kvaddir í herinn, samkvæmt frétt Wall Street Journal (áskriftarvefur).
Peskov sagði blaðamönnum í dag að það væri ekki gegn lögunum að kveðja fólk sem hefði verið handtekið fyrir mótmæli í herinn.
#Russia : wailing mothers and wives and buses full of men and boys being forced to go to the front in #Ukraine .
— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) September 22, 2022
From #Dagestan tonight. pic.twitter.com/TaGP7YXiOj
Í frétt Guardian segir einnig að herkvaðningin virðist koma hlutfallslega verra niður á minnihlutahópum í Rússlandi sem hafi hingað til einnig komið verr út úr stríðinu sjálfu. Menn sem tilheyri minnihlutahópum séu hlutfallslega stærri hluti af hernum en aðrir hópar og sömuleiðis hafi mun fleiri fallið.
Þá hafa fregnir borist af því að menn á fimmtugsaldri og jafnvel sextugsaldri, sem hafi aldrei verið í hernum, hafi verið boðaðir til herþjónustu.
#Russia : mobilization has started in #Yakutia in #Siberia.
— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) September 22, 2022
Unsurprisingly ethnic minority regions of Russia are the first to be called up. pic.twitter.com/Et2OvLeKvE
Einn viðmælandi miðilsins frá Buryatia, segir að 38 ára gamall eiginmaður hennar hafi verið kvaddur í herinn. Hann hafi aldrei verið í hernum áður. Hún segir hermenn hafa spurt hann hvort hann ætti ekki börn og að hann hafi sagt þeim að hann ætti fimm.
„Nú, jæja. Þú mátt búast við herkvaðningu,“ segir hún að hermennirnir hafi sagt.
( ) pic.twitter.com/haaWQX17uf
— Polina (@poli_golobokova) September 22, 2022
Fá mögulega enga þjálfun
Í greiningu hugveitunnar Institute for the study of war segir að ætli Rússar sér að þjálfa þessa nýju hermenn af einhverju viti og undirbúa þá fyrir átök muni það taka einhverjar vikur, ef ekki mánuði. Flestir þeirra hafi eins árs reynslu af herþjónustu og þjálfun innan rússneska hersins sé heilt yfir mjög slæm.
Ráðamenn í Rússlandi hafa verið margsaga um hvurslags þjálfun þessir menn eiga að fá. Einhverjir hafa talað um mánuð en því hefur einnig verið haldið fram að fyrrverandi hermenn undir þrítugu verði sendir beint á víglínurnar í Úkraínu.
Hvatti Rússa til mótmæla eða uppgjafar
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sendi rússneskum mæðrum skilaboð í kvöld. Hann skipti yfir í rússnesku í sjónvarpsávarpi sínu og hvatti fólk til að mótmæla í Rússlandi.
„Ákvörðun Rússlands að fara í herkvaðningu er viðurkenning á því að atvinnumannaher ríkisins, sem hefur verið þjálfaður í áratugi í því að hernema það sem aðrir eiga, stóðst ekki álagið og féll saman,“ sagði Selenskí, samkvæmt þýðingu Meduza.
Hann sagði að vegna herkvaðningarinnar væri innrás Rússlands í Úkraínu ekki lengur eitthvað sem almenningur í Rússlandi yrði eingöngu var við í sjónvarpi eða á netinu. Það hefði náð til allra rússneskra heimila.
„55 þúsund rússneskir hermenn eru dánir á hálfu ári. Tugir þúsunda særðir, limlestir. Viljið þið í alvörunni fleiri?“ spurði forsetinn og bætti við að ef ekki, þá ættu Rússar að mótmæla. Selenskí sagði að þeir ættu að berjast gegn ráðamönnum í Rússlandi, flýja eða gefast upp fyrir úkraínskum hermönnum. Það væri eina leiðin til að lifa af.
„Rússneskar mæður, þið megið ekki efast um það að leiðtogar ykkar munu ekki senda eigin börn á víglínurnar. Þeir sem taka ákvarðanir í landi ykkar vernda eigin börn en vilja ekki svo mikið sem jarða börnin ykkar,“ sagði Selenskí einnig.