Evrópumeistari, Íslandsmeistari og valin í úrvalslið Evrópu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. ágúst 2022 15:40 Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnar sigrinum á Íslandsmótinu í golfi um helgina. gsí/seth Kylfingnum unga Perlu Sól Sigurbrandsdóttur hefur gengið allt í haginn undanfarna daga. Hún hefur nú verið valin í fimm manna úrvalslið Evrópu í golfi.
Í síðasta mánuði varð Perla Evrópumeistari sextán ára og yngri þegar hún bar sigur úr býtum European Young Masters í Finnlandi. Um helgina varð Perla svo Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Hún var með eins höggs forystu á atvinnukylfinginn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur þegar keppni var hætt vegna veðurs. Hún er aðeins fimmtán ára og sú næstyngsta sem verður Íslandsmeistari. Perla hefur nóg fyrir stafni og meðal verkefna á dagskránni hjá henni er Junior Vagliano liðakeppnin í Skotlandi 26-27. ágúst. Þar mætir úrvalslið Evrópu úrvalsliði skipað bestu ungu kylfingum Bretlands og Írlands. Ásamt Perlu eru Johanna Axelsen (Danmörk), Anna Cañadó (Spánn), Andrea Revuelta (Spánn) og Carla De Troia (Frakkland). Sigurvegarinn úr R&A áhugamannamótinu í stúlknaflokki fær einnig sæti í liðinu en mótið hófst í dag. Í samtali við Helenu Ólafsdóttur í Sportpakkanum í gær sagðist Perla stefna að því að fara í háskóla í Bandaríkjunum á íþróttastyrk eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Hún hefur nám við Borgarholtsskóla í haust. Úrvalslið Evrópu hefur unnið Junior Vagliano liðakeppnina öll sex skiptin sem hún hefur farið fram. Keppnisfyrirkomulagið er svipað og í Solheimbikarnum og Ryderbikarnum í karlaflokki. Fyrir hádegi eru leiknir þrír fjórmenningsleikir, og eftir hádegi eru sex tvímenningsleikir. Alls eru átján stig í pottinum og þarf níu og hálft stig til að tryggja sér sigur.
Golf Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira