„Erum fíflin sem borgum launin til að senda þá út um allar koppagrundir til að spila fyrir aðra“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. ágúst 2022 14:30 Forseti Napoli, Aurelio De Laurentiis, liggur sjaldnast á skoðunum sínum. getty/NAPOLI Aurelio De Laurentiis, hinn umdeildi forseti Napoli, er hættur að kaupa afríska leikmenn nema þeir uppfylli eitt skilyrði.
Í janúar á þessu ári spiluðu tveir leikmenn Napoli á Afríkumótinu, Senegalinn Kalidou Koulibaly og Kamerúninn André-Frank Zambo Anguissa, og misstu þar með af mikilvægum leikjum í toppbaráttu ítölsku úrvalsdeildarinnar. De Laurentiis hafði lítinn húmor fyrir því og nennir ekki að lenda aftur í því að missa leikmenn á miðju tímabili. Hann hefur því ákveðið að kaupa ekki fleiri afríska leikmenn nema þeir samþykki að spila ekki á Afríkumótinu. „Ég sagði þeim að tala ekki lengur við mig um afrísku strákana! Ég elska þá en þeir verða að skrifa undir eitthvað þar sem þeir samþykkja að spila ekki á Afríkumótinu,“ sagði De Laurentiis við Wall Street Italia. „Við erum fíflin sem borgum launin aðeins til að senda þá út um allar koppagrundir til að spila fyrir aðra.“ De Laurentiis er einnig orðinn pirraður á því að suður-amerískir leikmenn séu fjarverandi vegna leikja í undankeppni HM og opinberaði þá óánægju sína í viðtalinu. Napoli endaði í 3. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í tvö ár.
Ítalski boltinn Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira