Ný bortækni gæti valdið byltingu í jarðgangagerð Kristján Már Unnarsson skrifar 2. ágúst 2022 15:36 Borvélmenni bandaríska fyrirtækisins Petra. Plasma-ljósboginn splundrar berginu. Petra Ný aðferð í jarðgangagerð sem felst í að nota plasma-ljósboga til að mölva sér leið í gegnum berg vekur vonir um að jafnvel villtustu draumar margra á Íslandi um veggöng gætu ræst. Fullyrt er að með þessari tækni megi grafa göng margfalt hraðar og margfalt ódýrar en með núverandi tækni og með mun minni umhverfisáhrifum.
Ekki færri en þrír ótengdir aðilar eru að þróa þessa nýju bortækni. Tveir þeirra eru bandarískir, nýsköpunarfyrirtækin Earthgrid og Petra, sem bæði eru staðsett í Kaliforníu. Þá er samstarfshópur þriggja evrópskra félaga að undirbúa tilraunaboranir í námu í Norður-Finnlandi. Plasma-ljósbogi er þó ekki ný uppfinning heldur er verið að yfirfæra og þróa tækni, sem notuð hefur verið í málmiðnaði, yfir í jarðgangagerð. Plasma-skurður er aðferð sem fundin var upp í kringum 1955 til að skera málma sem hefðbundin logsuða dugði lítt á, eins og ryðfrítt stál, ál og kopar. Það var þó ekki fyrr upp úr 1970 sem farið var að nota aðferðina í iðnaði. Tilraunir eru framundan í Finnlandi um hvort unnt verði að nota plasma-ljósboga við að grafa hundrað kílómetra löng neðansjávarlestargöng milli Helsinki og Tallinn, höfuðborga Finnlands og Eistlands.Finest Bay Area Development Slóvakíska borfyrirtækið GA Drilling og tvö finnsk samstarfsfélög tilkynntu í fyrravor að þau hefðu hafið undirbúning að tilraunaborunum með plasma-tækni í námu við finnska bæinn Pyhäjärvi. Talsmenn verkefnisins segja að með plasma megi tífalda afköst og draga verulega úr kostnaði. Markmið þeirra er annarsvegar að bora dýpstu jarðhitaborholu Evrópu, tíu kílómetra djúpa, og hins vegar að prófa tæknina á risabor, svokölluðum TBM, en þrjár slíkar borvélar voru notaðar við borun aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar. Annað finnsku félaganna vinnur að undirbúningi lestarganga undir Finnskaflóa, milli Helsinki og Tallinn, höfuðborga Finnlands og Eistlands, sem yrði þau lengstu í heimi. Fyrirtækið Petra gerir tilraunir með plasma-borun í námu í Sioux í Suður-Dakóda.Petra Bandaríska fyrirtæki Petra skýrði frá því í desember síðastliðnum að það hefði þróað borvélmennið Swifty sem tekist hefði að bora sex metra löng göng með plasma-ljósboga í gegnum mjög hart berg. Þau göng eru um sextíu sentímetrar í þvermál. Félagið hyggst bjóða tæknina til að grafa neðanjarðarlagnir fyrir vatnsveitur og rafmagnskapla og segir forstjóri Petra að með þessari aðferð megi lækka kostnað um 50 til 80 prósent. Annað bandarískt félag, Earthgrid, tilkynnti í síðasta mánuði að það hefði sótt um einkaleyfi fyrir borvélmenni, sem nýti plasma-tækni. Talsmenn fyrirtækisins staðhæfa að vélmennið geti grafið göng hundrað sinnum hraðar og allt að 98 prósent ódýrar en núverandi bortækni leyfir, eða fyrir aðeins 1/50 af því sem núna kostar að bora jarðgöng. Borvélmenni Earthgrid nýtir ofurheitan plasma-ljósboga við að mölva bergið án þess að snerta það.Earthgrid Ólíkt hefðbundnum jarðgangaborvélum, sem nota gríðarstór skurðarhjól til að grafa sig í gegnum bergið, þá er ofurhiti plasma-ljósboga notaður til að kurla upp bergið án þess að vélin snerti það. Earthgrid segir sína vél alfarið geta gengið fyrir rafmagni, sem þýði að aðferðin geti verið losunarlaus, allt eftir því hvernig orkan er fengin. Borun jarðganga með plasma-geisla krefst hins vegar mikillar orku. Til að bora göng sem væru einn metri í þvermál segir Earthgrid að borvélmenni þyrfti stöðugt um 40 megavött, sem er um 1/17 af orku Kárahnjúka. Borvél Earthgrid er lýst þannig að 72 plasma-kyndlum er raðað á skífu í spíral sem mölva bergið um leið og skífan snýst. Fyrir stór jarðgöng þyrfti margfalt meiri orku og afkastamikil færibönd til að flytja mylsnuna úr göngunum. Með háhraða uppsetningu segir Earthgrid að hægt væri að bora allt að einn kílómetra á dag. Sumarið 2007 tókst einum risabora Impregilo við Kárahnjúka að bora 106 metra á einum sólarhring, sem var heimsmet. Þegar þeir luku borun reyndu sveitarstjórnarmenn á Austurlandi að halda eftir einum bornum í landinu, sem sjá má í þessari frétt frá árinu 2008:
Vegagerð Jarðhiti Samgöngur Orkumál Fjarðabyggð Múlaþing Vestmannaeyjar Fjallabyggð Vesturbyggð Súðavíkurhreppur Ísafjarðarbær Vopnafjörður Vegtollar Tengdar fréttir Efasemdir á Seyðisfirði um gagnsemi Fjarðarheiðarganga „Í boði er annar valkostur sem er fjárhagslega hagkvæmur, leysir algerlega einangrun Seyðisfjarðar og opnar samtímis láglendisveg um allt Mið-Austurland, eykur allt öryggi og opnar nýja möguleika í samskiptum.“ 30. júlí 2022 13:26 Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum. 19. júlí 2022 22:01 Fjarðarheiði gleypir öll framlög og veggjöld til jarðganga í sautján ár Svo fjárfrek verða Fjarðarheiðargöng að öll framlög á fimmtán ára jarðgangaáætlun ásamt gjaldtöku af öllum göngum duga ekki til að greiða kostnaðinn. Rými til að grafa næstu göng í landinu skapast vart fyrr en í kringum árið 2040. 14. júlí 2022 22:30 Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni. 12. júlí 2022 22:04 Fólu bæjarstjóra að hefja samtal um jarðgöng til Vestmannaeyja Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar samþykkti bæjarstjórn tillögu þess efnis að bæjarstjóra og bæjarstjórn yrði falið að hefja samtal við stjórnvöld um að kanna fýsileika á gerð jarðgangna milli lands og Eyja. 9. júní 2022 19:14 Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. 6. janúar 2021 23:19 Mest lesið Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira
Efasemdir á Seyðisfirði um gagnsemi Fjarðarheiðarganga „Í boði er annar valkostur sem er fjárhagslega hagkvæmur, leysir algerlega einangrun Seyðisfjarðar og opnar samtímis láglendisveg um allt Mið-Austurland, eykur allt öryggi og opnar nýja möguleika í samskiptum.“ 30. júlí 2022 13:26
Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum. 19. júlí 2022 22:01
Fjarðarheiði gleypir öll framlög og veggjöld til jarðganga í sautján ár Svo fjárfrek verða Fjarðarheiðargöng að öll framlög á fimmtán ára jarðgangaáætlun ásamt gjaldtöku af öllum göngum duga ekki til að greiða kostnaðinn. Rými til að grafa næstu göng í landinu skapast vart fyrr en í kringum árið 2040. 14. júlí 2022 22:30
Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni. 12. júlí 2022 22:04
Fólu bæjarstjóra að hefja samtal um jarðgöng til Vestmannaeyja Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar samþykkti bæjarstjórn tillögu þess efnis að bæjarstjóra og bæjarstjórn yrði falið að hefja samtal við stjórnvöld um að kanna fýsileika á gerð jarðgangna milli lands og Eyja. 9. júní 2022 19:14
Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. 6. janúar 2021 23:19