Innlent

Land­læg veiru­skita af völdum kórónu­veiru

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Veiruskita smitast með saur og slími frá nösum og breiðist hratt út innan hjarða. Sjúkdómurinn er ekki hættulegur fólki en getur haft alvarlegar og langvarandi afleiðingar fyrir kýrnar þar sem hann skerðir ónæmiskerfi þeirra.
Veiruskita smitast með saur og slími frá nösum og breiðist hratt út innan hjarða. Sjúkdómurinn er ekki hættulegur fólki en getur haft alvarlegar og langvarandi afleiðingar fyrir kýrnar þar sem hann skerðir ónæmiskerfi þeirra. Vísir/Vilhelm

Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskitu í kúm hér á landi sé af völdum „Bovcov“ eða nautgripakórónuveiru. Í vor gekk veiruskita á kúabúum víða um land og lá grunur að um nautgripakórónuveiru væri að ræða. Með raðgreiningu úr sýni frá kúabúi á Norðurlandi hefur það nú verið staðfest.

Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun er veiruskita bráðsmitandi sjúkdómur í nautgripum sem finnst um allan heim. Mótefnamælingar hafa sýnt að sýking er mjög algeng í mjólkurkúm hérlendis og blossar veikin upp á mismunandi svæðum á landinu nokkuð reglulega.

Þá segir að sjúkdómurinn smitist með saur og slími frá nösum og breiðist hratt út innan hjarða. Smit berist auðveldlega með óbeinum hætti milli hjarða með óhreinindum sem fylgja fólki og fylgihlutum þeirra. 

Matvælastofnun segir mikilvægt að bændur haldi uppi öflugum sóttvörnum á búum sínum.Vísir/Magnús Hlynur

Oftast smitist allir næmir gripir á búinu á nokkrum dögum og sjúkdómurinn gengur yfir á einni til tveimur vikum. Hins vegar sé sjúkdómurinn ekki hættulegur fólki og hafi ekki áhrif á neysluhæfi afurða.

Aftur á mótir geti afleiðingar sjúkdómsins verið „alvarlegar og langvarandi þar sem sjúkdómurinn skerðir ónæmiskerfi kúnna þannig að þær verða viðkvæmari fyrir öðrum sjúkdómum, m.a. júgurbólgu og öðrum bakteríusýkingum.“ Veiruskitan auki einnig hættu á doða hjá kúm sem komnar eru nálægt burði og hafi neikvæð áhrif á frjósemi kúa.

Matvælastofnun segir mikilvægt að bændur haldi uppi öflugum sóttvörnum á búum sínum, „dragi úr flutningi gripa og tækja milli búa og lágmarki umgengni utanaðkomandi fólks.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×