Geimjakki Buzz Aldrin frá tungllendingunni á leið á uppboð Bjarki Sigurðsson skrifar 19. júlí 2022 14:06 Buzz Aldrin árið 2009 í tilefni fjörutíu ára afmæli tungllendingarinnar. Getty/Michael Loccisano Jakkinn sem geimfarinn Buzz Aldrin var klæddur í þegar hann var annar í sögunni til að stíga á tunglið er á leiðinni á uppboð. Talið er að jakkinn gæti selst á tvær milljónir dollara, rúmar 270 milljónir íslenskra króna.
Jakkinn fer á uppboð hjá Sotheby's uppboðshúsinu þann 26. júlí næstkomandi, ásamt fleiri munum úr einkasafni Aldrin. Flestir munanna tengjast Apollo 11-tunglleiðangrinum. Umræddur jakki.Sotheby's Aldrin, sem er orðinn 92 ára gamall, var hluti af fyrstu tungllendingunni og var annar til að stíga á tunglið, rétt á eftir Neil Armstrong. Hann segist vilja selja hlutina til að leyfa öðrum að njóta minjagripa úr þessari sögulegu ferð. „Ég vona að þetta safn leyfi einhverjum að sjá hvernig það er að vera Buzz Aldrin,“ segir í yfirlýsingu frá honum. Jakkinn sem fer á uppboð er eini klæðnaðurinn úr ferðinni sem enn er í einkaeigu. Þess vegna er verðmiðinn á honum svona hár. Hann er gerður úr óeldfimu efni sem kallast Beta Cloth og er með nafni Aldrin, ásamt merki NASA. Samferðarmenn Aldrin, Armstrong og Michael Collins, fengu eins jakka og eru þeir báðir til sýnis á Smithsonian flug- og geimsafninu í Washington DC.
Geimurinn Tunglið Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira