Eldurinn kviknaði líklega út frá gasbrennara Árni Sæberg skrifar 28. júní 2022 14:27 Slökkviliðið hefur ráðið niðurlögum eldsins. Stöð 2/Bjarni Slökkvilið var eldsnöggt á vettvang þegar eldur kviknaði í klæðningu atvinnuhúsnæðis í Dalshrauni í Hafnarfirði í dag. Slökkvistarf gekk vel og slökkviliðsmönnum tókst að koma í veg fyrir mikið tjón.
Hlynur Höskuldsson, varðstjóri aðgerðastjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við Vísi að líklegast hafi eldurinn kviknað út frá gasbrennara sem verið var að nota til að brenna arfa. „Það er ekki sniðugt ef þú ert með svona klæðningu. Þá getur eldurinn borist í það sem er undir klæðningunni, sem er bara tjörupappi,“ segir hann. Þó hafa upptök eldsins ekki verið staðfest enn sem komið er. Hlynur segir að slökkvilið hafi verið komið á vettvang örskömmu eftir að eldurinn kom upp. Slökkvistöðin í Hafnarfirði er í um 650 metra fjarlægð frá Dalshrauni 4 þar sem eldurinn kviknaði. Skjótur viðbragðstími slökkviliðs kom í veg fyrir að eldurinn næði að læsast í þak hússins eða aðliggjandi byggingar. Slökkviliðsmenn rifu klæðningu af einu bili hússins og reykræstu innandyra. Nokkur fjöldi starfsfólks var inni í húsnæðinu en það hýsir lyfjafyrirtæki. Fólkið var ekki nálægt upptökum eldsins og ekki í hættu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hafnarfjörður Slökkvilið Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Sjá meira