Innlent

Jón Magnús leiðir við­bragð­steymið um bráða­þjónustuna

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Magnús Kristjánsson er fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans.
Jón Magnús Kristjánsson er fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans. Vísir/Baldur Hrafnkell

Jón Magnús Kristjánsson hefur verið ráðinn í tímabundið verkefni til að leiða viðbragðstreymi heilbrigðisráðuneytisins um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar.

Sagt er frá þessu í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Jón Magnús er sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans, auk þess að vera með MBA gráðu frá háskólanum í Reykjavík og með viðtæka starfsreynslu í heilbrigðiskerfinu.

Haft ef eftir Jóni Magnúsi að fyrstu áhersluatriðin í vinnu viðbragðsteymisins séu eftirfarandi:

  • Útfæra bráðaviðbrögð sem nýtast í sumar til þess að tryggja bráðaþjónustu Landspítala og öryggi sjúklinga sem þangað leita. Til þess þurfi að grípa til margvíslegra aðgerða sem tryggja að sem flestir fái þjónustu á réttum stað í kerfinu sem getur dregið úr álagi á Landspítalanum.
  • Hlúa sérstaklega að mannauði þar sem mest álag er eins og á bráðamóttöku Landspítala.
  • Leggja allt kapp á að opna a.m.k. 100 endurhæfingar- og/eða hjúkrunarrými fyrir lok árs til að efla úrræði utan Landspítala. Þegar hafa verið tekin mikilvæg skref sem snúa að samningagerð, fjármögnun og mönnun til að tryggja að þetta gangi eftir.
  • Setja fram nokkuð ítarlega og tímasetta áætlun til næstu 3-5 ára um breytingar og umbætur í bráðaþjónustu til að bæta þjónustu, minnka sóun og auka árangur.

Jón Magnús segir að lykilinn til að ná þessum árangri sé samstarf allra aðila sem koma beint og óbeint að bráðaþjónustunni.

Í tilkynningunni er einnig haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra að hann fagni því að Jón Magnús hafi verið reiðubúinn að leiða þetta mikilvæga verkefni sem viðbragðsteymið standi frammi fyrir. 

„Ráðuneytið lítur á það sem forgangsmál að leysa úr þeim vanda sem bráðaþjónustan í landinu á við að stríða. Sá vandi hefur birst af hvað mestum þunga á bráðamóttöku Landspítala með viðvarandi álagi sem bitnar á sjúklingum og starfsfólki,“ segir Willum Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×