Lífið

Lady Zadude krýnd dragdrottning Íslands

Elísabet Hanna skrifar
Dragkeppni Íslands fór fram í gærkvöldi.
Dragkeppni Íslands fór fram í gærkvöldi. Eva Ágústa

Dragdrottningin Lady Zadude, eða öðru nafni Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, söng sig inn í hug og hjörtu áhorfenda og dómara í Tjarnarbíó í gær og hlaut titilinn dragdrottning Íslands.

Átta keppendur, einn sigurvegari

Átta draglistakvár tóku þátt í keppninni í gær. Í öðru sæti var Lola von Heart og var Twinkle Starr í því þriðja. Keppendur sýndu tvö atriði hver og í lok kvölds var það Lady Zadude sem stóð uppi sem sigurvegari og var einnig valin sem eftirlæti áhorfenda. 

Drag er listform sem hefur tengst hinsegin samfélaginu síðastliðna öld eða svo og má segja að dragið sem slíkt sameini mörg listform í eitt.

Dragdrottningarnar Gógó Starr og Agatha P krýna Lady Zadude sem dragdrottningu Íslands 2022.Eva Ágústa

Að launum hlýtur Lady Zadude fjölmarga vinninga frá styrktaraðilum keppninnar, en jafnframt styrk frá Hinsegin dögum til að útfæra þátttöku sína í Gleðigöngu Hinsegin daga og atriði fyrir á stóra sviðinu á útihátíð Hinsegin daga í Hljómskálagarðinum.

Dragdrottningin Lady Zadude, jafnframt þekkt sem Villi Vill.Eva Ágústa

Upphitun fyrir Hinsegin daga

Í tilkynningu frá keppninni segir að keppnin í ár hafi verið eins konar atrenna að Hinsegin dögum, hátíð sameiningar og samþykkis, sem fara fram vikuna annan til sjöunda ágúst.

„Heimsfaraldur hafði áhrif á Hinsegin daga, eins og samfélagið allt, undanfarin tvö ár en í ár verður sannarlega blásið til herlegra hátíðarhalda,“

segir einnig í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Viltu gifast, Gógó Starr?

Sigðurður Starr Guðjónsson er dragdrottningin Gógó Starr. Makamál tóku létt spjall við Gógó á Facebook og svaraði hún spurningum um ástina og lífið í formi gifa (hreyfimynda).

Dragkeppni Íslands snýr aftur

Í ár er 20 ára afmæli Hinsegin in daga og því verður heldur betur fagnað. Meðal annars ætlar Gógó Starr að halda Dragkeppni Íslands aftur eftir fjögurra ára hlé. ?2

Dragið bjargaði lifi mínu

Kamila Załęska er konan á bak við dragdrottninguna Gala Noir sem er nýkrýnd dragdrottning Íslands. Það vekur athygli að Kamila er kona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.