Skoðun

Framtíðin ræðst í bernskunni

Bjarney Grendal, Linda Hrönn Þórisdóttir og Margrét Vala Marteinsdóttir skrifa

Það er ekki að ástæðulausu að leikskólamál eru alltaf stór kosningamál. Mikil þörf er á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólagöngu og veldur þetta tímabil, sem oft er nefnt umönnunarbilið, mörgum foreldrum og öðrum forsjáraðilum miklum kvíða sem eðli málsins samkvæmt vilja að börnin sín fái örugga umönnun.

Hvað er börnum fyrir bestu? Sumir foreldrar hafa lengt fæðingarorlofið með því að fá t.d. 50% greiðslur í tvöfalt lengri tíma og hafa þannig minnkað þessa gjá milli fæðingarorlofs og leikskólagöngu og sumir eiga ömmur og afa á hliðarlínunni sem koma til bjargar. Það er þó ljóst að það hafa ekki allir foreldrar jöfn tækifæri til þess að brúa þetta bil stöðu sinnar og aðstæðna vegna og því ljóst að það búa ekki öll börn við sama borð.

Framsókn í Hafnarfirði leggur til fjölbreyttar leiðir til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla í samvinnu við fagfólk.

·Endurskoða starfsumhverfið í leikskólum frá grunni, m.a. með tilliti til vinnuaðstæðna, skilgreiningu á leikskóladeginum, hávaðamengunar, fermetrafjölda á skilgreindu leiksvæði og barngilda. Þannig hvetjum við fleira fagfólk til að vinna í leikskólum og löðum að meiri nýliðun í stétt leikskólakennara

·Styðja betur við dagforeldra með húsnæði, fræðslu og öðrum aðbúnaði. Þannig eflum við fagmennsku þessarar mikilvægu stéttar enn frekar.

·Hvetja stjórnvöld til þess að fæðingarorlof verði lengt upp í 18 mánuði. Framsókn hefur verið sá stjórnmálaflokkur sem hefur tvívegis lengt fæðingarorlofið. Allt er þá þrennt er, segir máltækið og höfum við fulla trú á að sú verði raunin hér.

·Hefja vinnu við að gera leikskólann að lögbundinni þjónustu í samvinnu við skólasamfélagið. Hann yrði þá gerður gjaldfrjáls í skrefum, byrjað á 5 ára börnum. Faglegt skólastarf í gegnum leik og sköpun eins og tíðkast nú þegar en verður skilgreint í jafn margar klukkustundir á dag og á yngsta stigi grunnskóla.

Með þessum margþættu aðgerðum komum við til móts við mismunandi óskir og stöðu foreldra og barna þeirra því við vitum að það sama hentar ekki öllum. Við búum við mismunandi aðstæður og þær þarf ávallt að meta með hagsmuni barnanna sjálfra að leiðarljósi. Það er samvinnuleiðin sem við í Framsókn stöndum fyrir.

Greinahöfundar eru allar mæður barna á leik- og grunnskólaaldri

Margrét Vala, skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði

Bjarney Grendal, skipar 5. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði

Linda Hrönn, skipar 16. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×