Skoðun

Aukin sam­vinna við frjáls fé­lög skilar öflugra frí­stunda­starfi

Almar Guðmundsson og Stella Stefánsdóttir skrifa

Samfélagið þarf á þátttöku okkar allra að halda í einni eða annarri mynd og það hefur sýnt sig að fólk sem tekur þátt í frjálsu félagastarfi er líklegt til að vera virkari þátttakendur í samfélagslegri uppbyggingu á öllum sviðum og öflugir liðsmenn á vinnustöðum. Ávinningurinn af því að virkja frjáls félagasamtök er því mikill fyrir samfélagið í heild. Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir því að Garðabær haldi forystu á þessu sviði. Íþróttir, útivist og öflugt félagastarf eru meðal þess sem einkennir Garðabæ enda höfum við sett stefnuna á að efla (félagslega) virkni íbúa og heilsueflandi samfélag. Spurning um að tala um virkni líka. Þ.e. félagslega virkni íbúa. Þó að við hugsum það sem hluta af heilseflandi samfélagi er ég ekki viss um að fólk sé almennt „læst“ á það samhengi.

Mikil uppbygging aðstöðu skapar tækifæri

Opnun Miðgarðs, fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri er nú fagnað og sætir tíðindum enda húsið stórglæsilegt og mun þjóna mörgum vel til langs tíma. Samhliða hefur íþróttaaðstaðan sem fyrir er í bænum verið endurbætt Áætlað er að við Miðgarð rísi síðar tvö íþróttahús og knattspyrnuleikvangur. Við munum byggja íþróttahús og sundlaug við Urriðaholtsskóla, flytja golfvöllinn á Álftanesi og þróa aðra golfvelli áfram. Við leggjum á áherslu á fjölbreytt frístundastarf og styðjum við frekari nýtingu íþróttamannvirkja til að efla félagslega virkni fólks á öllum aldri. Áframhaldandi uppbygging á stígakerfi, hvort sem er í upplandinu úti við strendur eða þar á milli, er mikilvæg fyrir vaxandi fjölda gangandi, hjólandi og hlaupandi. Einnig þarf að huga að uppbyggingu reiðstíga fyrir hestamenn og auka tækifæri fyrir ástundun vatnaíþrótta. Ekki verður allt gert í einu en í Garðabæ verður metnaðurinn að ráða för í góðu jafnvægi við gott skipulag og skynsamlegar áætlanir.

Virkjum kraft frjálsra félaga

Ungmennafélög, golfklúbbar, hestamannafélög, siglingaklúbbar, skátahreyfingin, félög eldri borgara og fjöldi góðgerðafélaga eins og Rotary og Oddfellow eru góð dæmi um þau frjálsu félög sem standa að samfélaginu hér í Garðabæ. Brennandi kraftur og elja sjálfboðaliða í félögunum knýr áfram framfarir og það er hlutverk sveitarfélagsins að ýta undir þá krafta enda skilar það sér margfalt til baka.

Samvinna Garðabæjar við frjáls félög hefur verið einstaklega farsæl og við þurfum að halda áfram að þróa hana til heilla fyrir samfélagið okkar. Við viljum setja sérstaklega á oddinn aukna samvinnu við félögin á sviði frístundarstarfs barna. Það má m.a. gera með því að félögin taki virkari þátt í tómstundastarfi barna með þjónustu utan skólatíma og með því að flétta barnastarfið betur inn í hefðbundið skólastarf. Þá viljum við að Garðabær þrói meiri stuðning fyrir félögin þegar kemur að frístundastarfi barna á sumrin þannig að þjónustuúrvalið breikki og styrkist enn frekar. Það er sérstaklega mikilvægt í þessu samhengi að horfa til að áhugasvið barna eru mjög mismunandi og það er þeim nauðsynlegt að upplifa fjölbreytta dagskrá. Við viljum umbuna félögunum sérstaklega fyrir þróun og nýsköpun í þessu starfi. Við höfum þá bjargföstu trú að krafturinn í frjálsu félögunum sé líkegri til árangurs á þessu sviði, í stað þess að sveitarfélagið sjálft sjái um þjónustuna. Það er hins vegar hlutverk þess að styðja vel við hana m.a. til þess að mæti þörfum fjölskyldna yfir sumartímann.

Enn frekari samvinnu félagasamtaka, íþróttafélaga og sveitarfélagsins er lykillinn að enn betra samfélagi. Það er gott fyrir Garðabæ.

Almar Guðmundsson er bæjarfulltrúi í Garðabæ og framkvæmdastjóri. Stella Stefánsdóttir er varabæjarfulltrúi í Garðabæ og viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×