Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Gjaldgeng til verðlaunanna voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem sýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2021. Verðlaunin sjálf verða síðan veitt 18. september.
Fjölbreytt kvikmynda- og sjónvarpsár á Íslandi
Þegar rýnt er í tilnefningarnar kennir ýmissa grasa eins og venjulega.
Wolka er næst á eftir Dýrinu þegar litið er til kvikmynda með átta tilnefningar og Leynilögga með sjö. Þegar litið er til sjónvarpsþátta eru Katla og Systrabönd efstir með tíu tilnefningar.
Verk á vegum Stöðvar 2 eru með alls sautján tilnefningar. Þar á meðal eru fréttaskýringaþættirnir Kompás og Martröðin á Hjalteyri sem eru unnir af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.
Árni Ólafur Ásgeirsson er tilnefndur fyrir leikstjórn sína í myndinni Wolka, hans fjórðu kvikmyndar en hann féll frá í fyrra í kjölfar alvarlegra veikinda. Hann átti glæstan feril sem kvikmyndaleikstjóri.
Nokkrir einstaklingar fá tvær tilnefningar; Margrét Einarsdóttir fyrir búninga í myndunum Dýrið og Lille Sommerfugl, Salóme Þorkelsdóttir í flokknum upptöku- eða útsendingastjóri ársins fyrir Straumar og Tónaflóð á Menningarnótt, Björn Hlynur Haraldsson sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir Leynilöggu og Dýrið og Jóhann Ævar Grímsson fyrir handrit ársins fyrir Stellu Blómkvist II og Systrabönd.
Hér að neðan má sjá allar tilnefningarnar.
Kvikmynd ársins
- Dýrið / Go To Sheep
- Leynilögga / Pegasus
- Wolka / Sagafilm

Leikið sjónvarpsefni ársins
- Katla
- Systrabönd
- Vegferð

Leikstjóri ársins
- Árni Ólafur Ásgeirsson fyrir Wolka
- Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
- Óskar Þór Axelsson & Þóra Hilmarsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
- Silja Hauksdóttir fyrir Systrabönd
- Valdimar Jóhannsson fyrir Dýrið

Leikari ársins í aðalhlutverki
- Björn Thors fyrir Katla
- Egill Einarsson fyrir Leynilögga
- Hilmir Snær Guðnason fyrir Dýrið
- Ólafur Darri Ólafsson fyrir Vegferð
- Víkingur Kristjánsson fyrir Vegferð

Leikkona ársins í aðalhlutverki
- Ilmur Kristjánsdóttir fyrir Systrabönd
- Íris Tanja Flygenring fyrir Katla
- Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
- Lilja Nótt Þórarinsdóttir fyrir Systrabönd
- Olga Boladz fyrir Wolka

Leikari ársins í aukahlutverki
- Björn Hlynur Haraldsson fyrir Dýrið
- Björn Hlynur Haraldsson fyrir Leynilögga
- Hlynur Atli Harðarson fyrir Katla
- Jónas Björn Guðmundsson fyrir Harmur
- Sveinn Geirsson fyrir Systrabönd

Leikkona ársins í aukahlutverki
- Anna Moskal fyrir Wolka
- Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Systrabönd
- María Heba Þorkelsdóttir fyrir Systrabönd
- Sólveig Arnarsdóttir fyrir Katla
- Vivian Ólafsdóttir fyrir Leynilögga

Búningar ársins
- Brynja Skjaldardóttir fyrir Wolka
- Margrét Einarsdóttir fyrir Dýrið
- Margrét Einarsdóttir fyrir Lille Sommerfugl

Gervi ársins
- Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Ófærð 3
- Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Dýrið
- Ragna Fossberg fyrir Katla

Leikmynd ársins
- Lásló Rajk fyrir Alma
- Marta Luiza Macuga fyrir Wolka
- Rollin Hunt fyrir Stella Blómkvist II
- Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Dýrið
- Sunneva Ása Weisshappel fyrir Katla

Brellur ársins
- Frederik Nord & Peter Hjorth fyrir Dýrið
- Monopix, ShortCut, NetFx & Davíð Jón Ögmundsson fyrir Katla
- Rob Tasker fyrir Systrabönd

Handrit ársins
- Jóhann Ævar Grímsson, Jónas Margeir Ingólfsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir & Dóra Jóhannsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
- Jóhann Ævar Grímsson, Silja Hauksdóttir, Björg Magnúsdóttir & Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
- Nína Petersen, Sverrir Þór Sverrisson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
- Sigurður Pétursson & Einar Þór Gunnlaugsson fyrir Korter yfir sjö
- Valdimar Jóhannsson & Sjón fyrir Dýrið

Frétta- og viðtalsþáttur ársins
- Kompás
- Kveikur
- Leitin að upprunanum
- Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri
- Ofsóknir

Skemmtiþáttur ársins
- Áramótaskaupið 2021
- Blindur Bakstur
- Hraðfréttajól
- Stóra Sviðið
- Vikan með Gísla Marteini

Íþróttaefni ársins
- EM í dag
- Pepsi Max deildin (Karla & kvenna)
- Skólahreysti
- Undankeppni HM karla í fótbolta
- Víkingar: Fullkominn endir

Mannlífsþáttur ársins
- Allskonar kynlíf
- Dagur í lífi
- Gulli Byggir / Stöð 2
- Heil og sæl? / Pegasus
- Missir / Republik

Menningarþáttur ársins
- Framkoma 3
- Fyrir alla muni 2
- Lesblinda
- Menningin
- Tónlistarmennirnir okkar

Heimildamynd ársins
- Hvunndagshetjur / Kvikmyndafélag Íslands
- Hækkum rána / Sagafilm
- Tídægra/Apausalypse / Elsku Rut ehf, Lokaútgáfan, Ground Control Productions, Ursus Parvus

Kvikmyndataka ársins
- Andri Haraldsson fyrir Tídægra / Apausalypse
- Anton Karl Kristensen fyrir Harmur
- Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Þorpið í bakgarðinum
- Eli Arenson fyrir Dýrið
- Marek Rajca PSC fyrir Wolka
Tónlist ársins
- Frank Hall fyrir Stella Blómkvist II
- Högni Egilsson fyrir Katla
- Jófríður Ákadóttir fyrir Þorpið í bakgarðinum
- Sunna Gunnlaugsdóttir fyrir Ísland: Bíóland
- Þórarinn Guðnason fyrir Dýrið

Klipping ársins
- Agnieszka Glinska fyrir Dýrið
- Guðni Hilmar Halldórsson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
- Jakob Halldórsson fyrir Hækkum rána
- Mateusz Rybka PSM fyrir Wolka
- Valdís Óskarsdóttir & Marteinn Þórsson fyrir Þorpið í bakgarðinum

Hljóð ársins
- Björn Viktorsson fyrir Lille Sommerfugl
- Huldar Freyr Arnarson fyrir Katla
- Ingvar Lundberg & Björn Viktorsson fyrir Dýrið

Barna- og unglingaefni ársins
- Benedikt búálfur / Trabant
- Birta / H.M.S. Production
- Krakkafréttir / RÚV
- Stundin okkar / RÚV
- Tilraunir með Vísinda Villa / Trabant

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins
- Björn Emilsson fyrir Ljótu hálfvitarnir
- Gísli Berg & Samúel Bjarki Pétursson fyrir Kappsmál
- Salóme Þorkelsdóttir fyrir Straumar
- Salóme Þorkelsdóttir fyrir Tónaflóð á Menningarnótt
- Þór Freysson fyrir Tilraunir með Vísinda Villa

Stuttmynd ársins
- Blindhæð / Majestic Productions
- Heartless / Reykjavík Rocket, Sagafilm
- When We Are Born / Akkeri Films, Mercury Studios, Petites Planetes, Ólafur Arnalds

Sjónvarpsmaður ársins
- Edda Sif Pálsdóttir
- Guðrún Sóley Gestsdóttir
- Helgi Seljan
- Kristjana Arnarsdóttir
- Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
