Lífið

Svala Björgvins og Sósa eru fluttar

Elísabet Hanna og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Svala Björgvins og Sósa eru fluttar.
Svala Björgvins og Sósa eru fluttar. HI beauty

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er flutt og er um þessar mundir að koma sér vel fyrir í nýrri bjartri íbúð ásamt hundinum Sósu. Þær ætla að hafa það náðugt á pallinum í sumar sem er að vekja mikla lukku.

Andrea Ingvarsdóttir vinkona Svölu birti myndir af flutningunum sem virðast ganga vel. Svala endurbirti svo myndirnar á sínum miðli. Í sumar eru spennandi tímar framundan hjá Svölu sem mun stíga á svið að hita upp fyrir TLC í Laugardalshöllinni. 

Fallegt og bjart heimili.Skjáskot/Instagram

Mikið hefur verið um að vera í lífi Svölu undanfarnar vikur. Kristján Einar unnusti hennar situr sem kunnugt er í fangelsi á Spáni. Ekki liggur fyrir tilefni handtökunnar en Kristján Einar hefur setið inni síðan fyrri hluta mars.

Svala og Sósa eru ánægðar með nýja pallinn.Skjáskot/Instagram

Svala fór svo á kostum í Eldhúspartý FM 957 á dögunum þar sem hún tryllti lýðinn.


Tengdar fréttir

Hljómsveitin TLC til Íslands í sumar

Í dag var tilkynnt um komu hljómsveitarinnar TLC til Íslands í sumar. Athafnamaðurinn Jón Bjarni Steinsson kom í Brennsluna í dag með góðar og slæmar fréttir. Hann sagði frá því að Secret Soltice hafi verið frestað og að TLC muni koma til Íslands í sumar. 

Kristján Einar sá sem hand­tekinn var á Spáni

Íslenski karlmaðurinn sem er í haldi lögreglunnar á Spáni eftir að hafa verið handtekinn þar í mars er Kristján Einar Sigurbjörnsson, áhrifavaldur og sjómaður. Þetta herma heimildir fréttastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.