Innlent

Fangelsis­dómur Þor­steins vegna kyn­ferðis­brota gegn ungum pilti stað­festur

Eiður Þór Árnason skrifar
Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag.
Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Vísir/Vilhelm

Landsréttur staðfest í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness gegn Þorsteini Halldórssyni frá 2020 þar sem honum var gerður upp hegningarauki upp á þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti.

Árið 2019 var Þorsteinn dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn öðrum dreng og hefur honum því verið gert að sæta fangelsi í samtals níu ár.

Sömuleiðis staðfesti Landsréttur ákvæði héraðsdóms þar sem honum var gert að sæta upptöku á farsíma og greiða brotaþola þrjár milljónir króna í miskabætur.

Þorsteinn er sakfelldur fyrir að hafa margítrekað tælt dreng á aldrinum 14 til 17 ára, til að hafa við sig kynferðismök með ólögmætri nauðung með því að hafa nýtt sér yfirburði sína gagnvart honum vegna aldurs-, þroska- og reynslumunar

Þetta hafi hann meðal annars gert með því að gefa piltinum farsíma og greiðslukort til afnota og veitt honum tóbak, áfengi og kannabisefni.

Jafnframt var Þorsteinn sakfelldur fyrir að hafa ítrekað tekið ljósmyndir af drengnum sem sýndu hann á kynferðislegan hátt og hafa slíkar myndir í vörslu sinni.

Í dómi Landsréttar segir að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að háttsemi Þorsteins hafi verið sérlega gróf og ófyrirleitin og beinst gegn barni yfir nánast samfellt tveggja ára skeið. Einnig var litið til þess að brotin væru hegningarauki við eldri dóm þar sem hann hafði verið dæmdur til fangelsisvistar í fimm ár og sex mánuði.


Tengdar fréttir

Þremur og hálfu ári bætt við dóm Þorsteins

Héraðsdómur Reykjaness hefur gert Þorsteini Halldórsssyni upp hegningarauka upp á þrjú og hálft fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti. Í fyrra var Þorsteinn dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn öðrum pilti. RÚV greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×