Sýknaður af ákæru um nauðgun vegna ósamræmis í framburði brotaþola Árni Sæberg skrifar 2. apríl 2022 19:39 Héraðsdómur Reykjaness Karlmaður á þrítugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað konu sem hann kynntist á skemmtistaðnum B5 árið 2019. Í niðurstöðum héraðsdóms segir að ekki hafi önnur niðurstaða verið tæk en að sýkna manninn vegna þess að framburður hans var talinn trúverðugari en meints brotaþola.
Málsatvik voru þau að árið 2019 var fólkið í miðbæ Reykjavíkur að fagna nýnemadegi ónnafngreinds skóla sem þau voru bæði nemendur í. Á skemmtistaðnum B5 lágu leiðir þeirra saman og í dóminum segir að þar hafi þau tekið tal saman, kysst, farið saman á barinn og deilt einum Somersby drykk. Á fjórða tímanum hafi þau farið saman í leigubíl ásamt ókunnugri konu sem var á leið í sömu átt úr miðbænum. Í löglegluskýrslu er haft eftir konunni að tilgangur þess að þau deildu leigubíl hafai verið að hún myndi bíða heima hjá manninum þangað til vinkona hennar kæmi að sækja hana. Hún hafi sagt honum að „ekkert myndi gerast“ enda hefði hún ekki áhuga á því auk þess sem hún væri á blæðingum. Maðurinn sagði fyrir dómi að hann hafi skilið samskipti þeirra svo að þau væru á leið heim til hans að stunda kynlíf. Hann hafi talið hana hafa minnst á blæðingar til að athuga hvort það væri ekki í lagi hans vegna. Hafi bitið hana í brjóst og háls Morguninn eftir kynni fólksins leitaði konan á Neyðarmóttöku Landspítalans þar sem hún sagði hjúkrunarfræðingi að þegar heim til mannsins var komið hafi þau kysst en hún sagt honum að hún vildi ekki meira en það. Maðurinn hafi þá haldið henni fastri, hún við það frosið, hann klætt hana úr fötum og stungið getnaðarlim sínum inn í leggöng hennar. Hún hafi ítrekað sagt nei en hann haldið fyrir munn hennar og bitið hana í háls og brjóst. Maðurinn neitaði þessari frásögn staðfastlega og sagði þau hafa stundað kynmök með samþykki beggja. Fjölskylda mannsins var heima Maðurinn var aðeins 21 eins árs gamall þegar atvikið sem um ræðir varð. Hann bjó í foreldrahúsum og var fjölskylda hans heima umrætt kvöld. Móðir hans, tveir bræður, tíu og fjórtán ára, og mágkona hans voru öll sofandi þegar fólkið kom heim til hans. Fjölskyldan kvaðst ekki hafa orðið vör við neinn umgang um nóttina og ekki heyrt í neinum átökum. Fjölskyldan fól manni, sem er sérfróður í hljóðmælingum, að mæla og meta lofthljóðeinangrun milli aðlægra rýma á efri hússins. Niðurstaða hans var að viðbúið væri að hvorki myndu heyrast venjuleg né hávær samtöl milli herbergja á efri hæð, að því gefnu að dyr væru lokaðar milli sömu rýma. Hróp og köll myndu að líkindum heyrast, háð styrkleika þeirra. Sýknaður vegna smávægilegs misræmis í framburði konunnar Í dómi héraðsdóms segir að framburðir bæði mannsins og konunnar hafi verið trúverðugir en að framburður mannsins hafi verið örlítið trúverðugari. Til dæmis er tekið fram að hann hafi verið með allar tímasetningar á hreinu, til að mynda hvenær hann keypti Somersby á B5 og hvenær komið var heim til hans. Konan hafi hins vegar sagt óljóst frá tímasetningum. Þá segir að ákveðin atriði í framburði hennar „stingi í augun“, til að mynda að hún hafi ekki geta lýst því fyrir dómi hvernig maðurinn klæddi hana úr öllum fötunum en fyrir liggi að hún hafi verið í uppháum leðurbuxum. „Þær buxur voru ekki ljósmyndaðar af lögreglu og liggur því ekkert fyrir um útlit þeirra og hversu auðvelt eða erfitt var að klæðast úr þeim,“ segir í dóminum. Einnig taldi dómurinn að smávægilegt misræmi milli fyrstu frásagnar konunnar á neyðarmóttöku og frásagnar hennar fyrir dómi veikti framburð hennar. Sér í lagi þar framburður mannsins var talinn trúverðugur um það sem gerðist heima hjá honum. Að lokum er nefnt í dóminum að það veiki sönnunarstöðu ákæru valdsins að lak, sem hafði verið á rúmi mannins umrætt kvöld, hafi farið forgörðum eftir að hafa verið haldlagt af lögreglu. Samkvæmt framangreindu ásamt nánar tilgreindum ástæðum var maðurinn sýknaður af ákæru ákæruvaldsins og bótakröfu konunnar. Dóm Héraðsdóms Reykjaness má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira