Skoðun

Í­búa­lýð­ræði og stór­laxar á Austur­landi

Pétur Heimisson skrifar

Heil 55% Seyðfirðinga mótmæltu áformum um laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði. Sumir kjörnir fulltrúar Múlaþings tjáðu auðmýkt sína gagnvart þeirri virku lýðræðistilraun með því að véfengja að undirritendur væru allir Seyðfirðingar og svo langt var gengið að vara við því að hlusta á mótmælendur, fyrrnefndan hreinan meirihluta, umfram hina. Íbúar hafa kallað eftir upplýsingum og sveitarstjórn Múlaþings beindi því til forsvarsmanna fiskeldisins að kynna áform sín með því kröftuga orðalagi; „...um leið og aðstæður leyfa...“. 

....og loks leyfðu aðstæður 

Þann 3. mars sl. hélt laxeldisfólk upplýsingafund, 7 árum frá upphafi eldisáformanna og nær 10 mánuðum eftir að sveitarstjórn bað um slíkan fund. Jens Garðar forsvarsmaður eldisins opnaði fundinn, íklæddur tveimur sloppum, var í senn fundarstjóri, forsvarsmaður og aðalkynnir laxeldisins. Gefur það tilefni til að tala um fleiri fiska hála, en ála? Hann sagði laxeldisfólk vilja hefja eldið í Seyðisfirði í samfélagslegri sátt, en í hvorum sloppnum hann var þá sá ég ekki. Um kynninguna má segja að fagurt galaði fuglinn sá og framsögumenn gerðu sitt besta til að segja þann hluta sannleikans sem þeir sjá og aðhyllast. Tveimur vikum síðar birti Austrfrétt þessa tilvitnun í Jens Garðar; „Ég hef nú reyndar trú á að okkur takist að skapa víðtæka sátt um uppbyggingu fiskeldis á Seyðisfirði en ef það fer á versta veg þá gæti það haft auðvitað áhrif á uppbyggingaráform okkar á Djúpavogi“. Boðlegt? 

Óboðlegt af mörgum ástæðum 

Sjókvíaeldi er þegar í fjörðum eystra en eldismenn vilja meira, mikið meira. Um fullvinnslu afurðar er ekki rætt, andstætt því sem almennt gerist við verðmætasköpun í dag. Andstæðingar eldis í opnum sjókvíum telja það óboðlega aðferð við matvælaframleiðslu og styðja m.a. með myndum af sjúkum og sárum laxi úr slíku eldi. Norsk laxeldissaga vitnar um að eldi í opnum sjókvíum drepur hluta lífs á botni, ógnar villtum laxi í vissum mæli og hugsanlega líka rækjumiðum. Að hefja fiskeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði tel ég ekki boðlegan valkost í dag þegar við vitum að markmið um hagsæld og um verndun lífríkis eru ekki andstæð, heldur fara saman. 

Ég hef á líðandi kjörtímabili unnið gegn fiskeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði, bæði vegna náttúruverndarsjónarmiða og andstöðu Seyðfirðinga, andstöðu sem Skiplagsstofnun telur jafnvel þá mestu við slíkt eldi sem þekkist. Náttúruvernd hefst í heimabyggð og þar á að iðka íbúalýðræði árið 2022. Veldur hver á heldur. 

Höfundur er heimilislæknir, fulltrúi VG í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings og skipar 3. sæti á lista VG í Múlaþingi fyrir kosningarnar 14.05.2022.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×