Lífið

Æði strákarnir taka upp þáttaröð fjögur á Tenerife

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tökur standa yfir á fjórðu þáttaröðinni af Æði. Hópurinn sýndi frá hótelgarðinum á Instagram.
Tökur standa yfir á fjórðu þáttaröðinni af Æði. Hópurinn sýndi frá hótelgarðinum á Instagram. Instagram

Patrekur Jaime, Binni Glee og Bassi Maraj eru staddir á Tenerife í augnablikinu. Þeir eru þar í samstarfi við Úrval útsýn að taka upp fjórðu þáttaröð af Æði, sem slegið hafa í gegn á Stöð 2.

Í þáttunum fáum við að fylgjast með daglegu lífi vinana og það er yfirleitt nóg af skrautlegum uppákomum. Tvíburarnir Gunnar Skírnir og Sæmundur Brynjólfssynir sem hafa áður komið fram í Æði þáttunum eru með þeim og munu augljóslega koma fyrir í fjórðu þáttaröðinni. 

Binni var í beinni á Instagram í gær og er hægt að horfa á myndbandið hér  neðst í fréttinni. Jóhann Kristófer Stefánsson leikstjóri Æði þáttanna kemur þar inn í útsendinguna þar sem hann er auðvitað með hópnum úti og einnig Áskell Harðarson og Alexis Garcia. 

Æði
Æði
Æði
Æði
Æði
Æði






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.