Vítalía greinir frá kærunni á Twitter og lætur mynd af staðfestingar því að lögregla hafi móttekið kæruna fylgja færslunni. Hún skrifar að dagurinn sé stór fyrir sig og vonandi fyrir betra samfélag. Vítalía segir í samtali við fréttastofu að kæran beinist gegn Þórði Má, Ara og Hreggviði.
Stór dagur í dag fyrir mig og vonandi fyrir betra samfélag. pic.twitter.com/NTundVlQ4u
— Vítalía Lazareva (@LazarevaVitalia) March 22, 2022
Mál Vítalíu komst fyrst í kastljósið í janúar eftir að viðtal Eddu Falak við hana í hlaðvarpinu Eigin konur birtist. Þar lýsti Vítalía því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi þriggja eldri karlmanna í sumarbústaðarferð, sem hún hafði mætt í til að hitta þáverandi ástmann sinn, sem samkvæmt heimildum fréttastofu er einkaþjálfarinn Arnar Grant.
Í kjölfarið var greint frá því að Ari Edwald, þáverandi framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, hefði stigið til hliðar úr stjórn fyrirtækisins. Strax sama dag steig Hreggviður, þá stjórnarformaður og aðaleigandi Vertias Capital, úr stjórn þess og stjórnum tengdra fyrirækja. Hreggviður sagði í yfirlýsingu sem hann sendi út að hann harmaði að hafa ekki stigið úr aðstæðunum sem Vítalía segði frá og honum þætti þungbært að heyra um hennar reynslu. Hann teldi sig þó ekki hafa gerst brotlegan við lög.
Þórður Már sagði sig sömuleiðis úr stjórn Festi vegna ásakananna og Arnar Grant hætti tímabundið störfum hjá World Class, þar sem hann starfaði sem einkaþjálfari í verktakavinnu. Sama kvöld fór fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sömuleiðis í tímabundið leyfi frá sínum störfum hjá útvarpsstöðinni K100, en hann var sömuleiðis bendlaður við aðra frásögn Vítalíu í hlaðvarpsþættinum af meintu kynferðisofbeldi.
Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar sagði að Vítalía hafi þegar kært mennina þrjá til lögreglu. Kæran hefur hins vegar ekki verið lögð fram til lögreglu heldur hefur Vítalía bókað tíma hjá kærumóttöku lögreglu.