Lífið

Samdi lög um ástarsorg áður en hún upplifði hana sjálf

Elísabet Hanna skrifar
Una Torfadóttir semur um mannlegar tilfinningar sem við þekkjum öll.
Una Torfadóttir semur um mannlegar tilfinningar sem við þekkjum öll. Aðsend

Una Torfadóttir var að gefa út sitt fyrsta lag í dag en sem barn skrifaði hún dramatíska texta um ástarsorg sem hún hafði aldrei upplifað. Í dag býr hún yfir mikilli lífsreynslu sem hún vinnur meðal annars úr með því að semja tónlist.

Hefur farið í gegnum meira en flestir

Unga tónlistarkonan gaf út sitt fyrsta lag Ekkert að í dag en lagið er það fyrsta af væntanlegri EP-plötu sem ber heitir Flækt og týnd og einmana. Þegar hún var yngri samdi hún á ensku en í dag heldur hún sig við móðurmálið íslensku.

Mér finnst viðeigandi að þetta sé fyrsta lagið sem fólk fær að heyra frá mér. Hér er ég berskjölduð að gefa út tónlist í fyrsta skipti og í þessu lagi legg ég öll spilin á borðið“

segir hún. Una hefur þrátt fyrir ungan aldur farið í gegnum meira en flestir. Barátta hennar við krabbamein í heila var mikið í fréttum hér um árið þegar móðir hennar Svandís Svavarsdóttir endurskipulagði störf sín sem ráðherra til að vera til staðar fyrir dóttur sína.

Lögin eins og að lesa dagbókina hennar

Una segir hvert lag vera eins og dagbókarfærslu eða bréf sem geymi allar hugsanirnar og allt sem hún vildi geta sagt. Hún segir þau bera með sér viðkvæmar vangaveltur um tilfinningar sem er oft erfitt að tjá. Hún semur flest lögin á gítar inni í herberginu sínu með dagbókina opna fyrir framan sig.

Hér að neðan má heyra fyrsta lagið sem Una gefur frá sér.

Það er svo fyndið ferli að semja lag, ég hef enga stjórn á laginu, mitt verkefni er bara að leita og prófa, hlusta á það sem kemur og skrifa niður áður en það gleymist“

Væntanleg plata

Á væntanlegri plötu sem er gefin út í nánu samstarfi við Sony Music Iceland er einvala lið fagmanna með Unu í verkefninu. Hildur Kristín Stefánsdóttir pródúserar, Hafsteinn Þráinsson hljóðblandar og Kári Ísleifsson masterar. Tumi Torfason, bróðir Unu, spilar á bassa, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur og Una spilar sjálf á gítar og píanó.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.