Það á ekki að vera tabú að ræða breytingaskeiðið Artasan 7. mars 2022 08:50 Laufey Steindórsdóttir hefur gengið í gegnum breytingaskeiðið og segir löngu tímabært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um skeiðið. Laufey Steindórsdóttir hefur gengið í gegnum breytingaskeiðið og segir löngu tímabært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um skeiðið.
Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af lífsskeiði kvenna og eitthvað sem allar konur ganga í gegnum, hins vegar er afar einstaklingsbundið hvernig konur upplifa tilteknar breytingar. Sumar konur upplifa frelsi og fagna þessum tímamótum og því að vera komin á þann stað í lífinu að búa yfir meiri sjálfsþekkingu, visku og þroska. Hins vegar eru sumar hverjar sem kvíða þessum breytingum og þeim líkamlegu og andlegu einkennum sem geta fylgt í kjölfarið. Breytingaskeið kvenna Flestar konur finna fyrir því þegar hormónabreytingar hefjast, þó svo að þær geri sér ekki alltaf grein fyrir því að um upphaf breytingaskeiðs sé að ræða. Á meðan sumar konur fara létt í gegnum þetta tímabil eru aðrar konur sem upplifa töluvert skert lífsæði. Einkenni hormónabreytinga geta verið afar mismunandi á milli kvenna en algengustu einkenni sem konur upplifa eru hitakóf, nætursviti, þreyta, svefnleysi, pirringur og depurð. „Einkenni breytingaskeiðsins eru eins mismunandi og við konur eru margar og því er mikilvægt að við tölum saman og leitum leiða sem gagnast hverri einstakri konu. Vellíðan og góð heilsa eru sönn lífsgæði,‘‘ segir Laufey Steindórsdóttir hjúkrunarfræðingur. Að vera kona er pínu flókið Laufey Steindórsdóttir hefur upplifað breytingaskeiðið með ýmsum kvillum og deilir hér með okkur sinni reynslu. ,,Í gegnum mitt lífsskeið hef ég áttað mig á því að hormón stýra mínu tilfinningalífi að miklu leyti en mun meira en ég kæri mig um. Þegar ég var 43 ára varð ég skyndilega stygg, stíf, varnarlaus og vonlaus en það var eitthvað sem breyttist,“ segir Laufey sem síðar meir leitaði til kvensjúkdómalæknis með sín einkenni. ,,Ég fékk staðfest með blóðprufu hjá mínum kvensjúkdómalækni að sjálft breytingaskeiðið væri hafið. Ég verð að viðurkenna að ég vissi nánast ekkert um þetta dularfulla skeið. Engin í mínu nærumhverfi hafði rætt um breytingarskeiðið og ég sem starfandi hjúkrunarfræðingur hafði ekkert kynnt mér efnið. Þá hófst heimildaleit og sjálf leitin að lausnum til að bæta mína líðan en ég gat ekki hugsað mér að tapa lífsneistanum á besta aldri en þannig leið mér. Svefnlausar nætur með hitakófi og svitaköstum, sveiflur í skapi og pirringur var daglegt brauð og svo gerðist það sem ég ætlaði varla að trúa, ég fór að missa hárið. Fallega, þykka hárið mitt sem hafði verið mitt stolt bara hrundi af í óþægilega miklu magni sem mér þótti verulega sárt. „Að vera kona er pínu flókið að mínu mati en jafnframt fannst mér tekinn frá mér hinn sanni lífsneisti sem var kynhvötin, hún hreinlega gufaði upp.‘‘ Tölum saman og leitum leiða að bættri heilsu og líðan ,,Fyrir sumar konur getur verið nóg að fara náttúrulegar leiðir til að slá á einkenni og aðrar byrja á hormónum. Þegar mér leið sem verst var minn bjargvættur náttúru bætiefnið Femarelle sem systir mín hvatti mig til að prófa. Eftir rúma tveggja vikna inntöku var ég farin að finna mun á svefngæðum því hitakófin nánast hættu. Ég tók Femarelle í heilt ár og er mjög ánægð með þann ávinning sem af þeim hlaust. Í dag er ég byrjuð á hormónum en get svo sannarlega mælt með Femarelle sem náttúrulegri lausn við vægari einkennum breytingaskeiðsins. Það er löngu tímabært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um þetta margbreytilega skeið í lífi kvenna. Tölum saman og leitum leiða að bættri heilsu og líðan,‘‘ segir Laufey sem vill gera breytingaskeiðið að eðlilegu umræðuefni og fá almenning til að gera sér grein fyrir því sem fylgir þessu skeiði. Femarelle eru hormónalausar vörur hannaðar fyrir konur á mismunandi stigum tíðarhvarfa og fást í þremur gerðum. Byggt á rannsóknum Femarelle hefur notið mikilla vinsælda hjá konum allt frá 35 ára aldri en ekki er það að ástæðalausu. Femarelle er náttúruleg lausn en vörurnar eru hannaðar fyrir konur á mismunandi stigum tíðarhvarfa sem hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Femarelle vörurnar eru byggðar á rannsóknum leiðandi kvensjúkdómalækna og þær slegið á fjölmörg einkenni sem tengja má hormónabreytingum. Vörurnar innihalda sérstakt efnasamband sem kallast DT56a en það er unnið úr óerfðabreyttu soya sem hefur það að markmiði að slá á einkenni, ásamt hörfræi og B vítamín blöndu sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfseminni. Femarelle Unstoppable inniheldur að auki D-vítamín sem er mikilvægt gegn beinþynningu þegar árin færast yfir. Femarelle á breytingaskeiðinu Femarelle bætiefnin eru hormónalaus lausn gegn einkennum breytingarskeiðs og eru hönnuð fyrir konur á mismunandi stigum tíðarhvarfa. Femarelle er fáanlegt í þremur tegundum sem hafa það sameiginlegt að innihalda DT56a ásamt vítamín og bætiefnum sem hentar fyrir 40+, 50+ og 60 ára og eldri eins og umbúðirnar gefa til kynna.
Heilsa Mest lesið „Ég hef gert mig þannig tilbúna fyrir þetta að ég eigi titilinn skilið“ Lífið Rikki G skilar lyklunum að FM957 Lífið Skuggavaldið: Popúlískir samsærisórar nú stjórnarhættir stórveldis Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Elísabet fær uppreist æru Gagnrýni Hvað er eðlilegt að stunda kynlíf oft í mánuði? Lífið „Nei, við mælum þetta krabbamein í mánuðum“ Lífið Svona varð fimm hundruð milljóna Volcano Express til Lífið „Litagleðin er að springa út“ Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Fleiri fréttir Merkja uppgjöf í baráttunni og blása til sóknar Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira