Innlent

Aðstæður fóru úr böndunum í Kringlunni

Snorri Másson skrifar

Örtröð er orðið yfir þvöguna sem myndaðist við blómatorgið í Kringlunni í dag, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Gústi B. TikTok-stjarna þurfti að yfirgefa svæðið skömmu eftir að hann mætti. Hann átti að vera í tvo tíma, en var í fimm mínútur. Yfiröryggisvörður í Kringlunni kvaðst aldrei hafa þurft að stöðva skipulagt atriði í Kringlunni áður. 

Þegar kötturinn var sleginn úr tunnunni í tilefni öskudags ruddust börn inn á svæði, sem þeim má hafa verið ljóst að þau máttu ekki ryðjast inn á beint eftir að kötturinn hefði verið sleginn úr tunnunni. Sjón er sögu ríkari og vísast á myndbrotið hér að ofan.

Búningarnir voru fjölbreyttir að vanda, allt frá bófum, brúðum, dýrum, lögreglumönnum og til ja, „goons.“ Hvað er goon? Það er röggsamur og skeytingarlaus gangster í yngri kantinum, eins og var útskýrt í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Nýverið var fjallað um Gústa B., Ágúst Beintein Árnason, í Íslandi í dag:

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis fór þá á stúfana í Reykjavík í dag og hitti metnaðarfull öskudagsbörn. Hér er brot af því besta.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Allir sammála: Hrekkjavaka er betri en öskudagur

Hrekkjavakan er haldin hátíðleg í kvöld víða um heim, þar á meðal hér á landi. Fréttamaður okkar leit við í Hamrahlíð þar sem búið var að skreyta hús í anda hátíðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×