Erlent

Segja hluta greiðslu Andrésar til Giuf­fre úr vasa drottningarinnar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Elísabet önnur Bretlandsdrottning.
Elísabet önnur Bretlandsdrottning. Chris Jackson - WPA Pool/Getty Images

Andrés prins mun greiða Virginu Giuffre og góðgerðarsamtökum hennar meira en tólf milljónir punda, um tvo milljarða íslenskra króna, vegna samkomulags þeirra um að mál Giuffre á hendur honum verði fellt niður. Bretlandsdrottning mun fjármagna greiðsluna að hluta.

Þetta kemur fram í frétt forsíðufrétt Daily Telegraph í morgun. Greint var frá því í gær að Andrés og Giuffre hefðu komist að samkomulagi um að binda enda á einkamál hennar á hendur honum.

Giuffre hafði sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre sagðist hafa verið fórnarlamb mannsals og sagði Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Greint var frá því í gær að hvorugur aðilinn gæti tjáð sig nánar um samkomulagið. Telegraph segist þó hafa heimildir fyrir því að heildarfjárhæð samkomulagsins sé yfir tólf milljón punda eins og áður sagður.

Í frétt Telegraph kemur einnig fram að Elísabet II Bretlandsdrottning, móðir Andrésar, muni fjármagna greiðsluna að hluta, svo að ljúka megi málinu sem hefur legið þungt á bresku konungsfjölskyldunni. Í fréttinni kemur einnig fram að Elísabet hafi einnig komið að því að greiða fyrir lögfræðinga Andrésar í málinu.

Í fréttinni kemur einnig fram að samningaviðræður á milli lögfræðinga Andrésar og Giuffre hafi tekið um tíu daga. Góður gangur hafi komist í þær þegar dómari í málinu ákvað að vitnaleiðslur vegna málsins færu fram í næsta mánuði. Þá hefði Andrés þurft að svara spurningum lögfræðinga Giuffre undir eið.

Lítil sem engin eftirspurn eftir kröftum Andrésar

Samkvæmt Daily Telegraph í dómsskjölum vegna sáttarinnar að Andrés segist sjá eftir tengslum sínum við Epstein. Talsmenn hans segja að hann muni ekki tjá sig frekar um sáttina.

Óvissa ríkir um framtíð hlutverks Andrésar innan konungsfjölskyldunnar en hann var látinn hætta að koma fram fyrir hönd hennar eftir að mál Giuffre gegn honum komst í hámæli. Í frétt Daily Telegraph segir að honum hafi verið ráðlagt að hafa hljóttu m sig út árið hið minnsta. Ekki ríki mikil eftirspurn eftir kröftum hans vegna málsins.


Tengdar fréttir

Andrés semur við Giuffre

Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Andrés missir titla sína

Andrés prins hefur afsalað sér titlum sínum vegna ásakana gegn honum um kynferðisbrot. Um er að ræða titla hans innan hersins og konungsfjölskyldunnar og mun hann ekki koma að opinberum viðburðum en þessi ákvörðun var tekin með samþykki Elísabetar drottningar, móður Andrésar.

Andrés prins kærður fyrir nauðgun

Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×