Frá þessu er greint í frétt spænska miðilsins El Dia. Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir í samtali við Vísi að slíkt mál hafi ekki enn komið inn á borð borgaraþjónustunnar. DV greindi fyrst frá íslenskra miðla.
Talið að hann hafi sofnað í bílnum
Að sögn spænska miðilsins fannst brunnið lík kaupsýslumanns í bílskúrnum þegar slökkviliðsmenn reyndu að slökkva eldinn á sunnudag. Tilkynning hafi borist um eldsvoðann klukkan 7:30 á staðartíma og rannsókn lögreglu bendi ekki til þess að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Í gær kom fram að þrjár bifreiðar hafi brunnið í bílskúrnum. Samkvæmt heimildum DV var hinn látni búsettur á eyjunni ásamt fjölskyldu sinni.
El Dia fullyrðir að krufning bendi til að maðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis þegar hann lést. Þá hafi maðurinn mögulega verið að reykja sígarettu inn í bifreið sinni þegar hann sofnaði. Bílskúrinn er sagður standa við lúxusvillu á Kurt Konrad Mayer-stræti en í gær mátti sjá bifreið fyrir utan sem hafði gjöreyðilagst í eldsvoðanum.
Fréttin hefur verið uppfærð: Maðurinn sem lést hét Haraldur Logi Hrafnkelsson.