Innlent

Ragnar á Brandenburg stígur til hliðar

Jakob Bjarnar skrifar
Ragnar Gunnarsson á Brandenburg hefur nú stigið til hliðar vegna ásakana barnsmóður sinnar sem birtust í viðtali Vikunnar.
Ragnar Gunnarsson á Brandenburg hefur nú stigið til hliðar vegna ásakana barnsmóður sinnar sem birtust í viðtali Vikunnar. brandenburg/skjáskot

Ragnar Gunnarsson er framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg. Hann hefur nú stigið til hliðar vegna viðtals við barnsmóður sína sem sakar hann um andlegt og líkamlegt ofbeldi.

Ragnar sendi frá sér stutta yfirlýsingu þess efnis á Facebook-síðu sinni nú rétt í þessu:

„Mér þykir ákaflega sárt að lesa lýsingar barnsmóður minnar í viðtali við Vikuna en ég tel ekki rétt að úttala mig um mína hlið í fjölmiðlum. Deilur okkar, sem varða forræði, eru í sínu rétta ferli. Ég mun stíga til hliðar úr starfi mínu sem framkvæmdastjóri hjá Brandenburg. Ég tel mér ekki fært að sinna því starfi fyllilega á sama tíma og ég tekst á við þetta mál með hagsmuni dóttur okkar að leiðarljósi.“

Barnsmóðir Ragnars er Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur, en á vef DV í gær var greint frá því að hún segi af „andlegu og líkamlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns í nýjasta tölublaði Vikunnar.“

Þar segir að téð tölublað tímaritsins komi út með formlegum hætti í dag en samkvæmt heimildum DV barst ritstjórn Vikunnar bréf frá lögmanni Ragnars, Gunnari Inga Jóhannssyni hjá MAGNA lögmönnum, þar sem hótað var lögsókn ef viðtalið yrði birt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×