Innlent

Frelsis­­­svipti og beitti kyn­ferðis­of­beldi að loknum hús­fundi

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Ákærði neitaði að hafa veist að brotaþola.
Ákærði neitaði að hafa veist að brotaþola. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar og fyrir að hafa frelsissvipt konu í íbúð sinni. Maðurinn var nágranni brotaþola og hann veittist að konunni að loknum húsfundi. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í vikunni.

Í málavaxtalýsingu héraðsdóms segir að ákærði hafi ítrekað boðið brotaþola að sjá nýuppgerða íbúð sína en þau hafi verið nágrannar. Hún hafi loks gefið undan en haldið að barn og maki mannsins væru heima. Það hafi reynst misskilningur og ákærði hafi þá lokað dyrunum á eftir þeim, tvílæst hurðinni og sett keðju fyrir.

Fljótlega hafi ákærði þá sett spýtu milli hurðarhúns og gólfs og hafi brotaþoli fengið við það áfall. Maðurinn hafi þá byrjað að káfa á henni, sest ofan á hana og reynt að komast með hendur inn á buxur brotaþola. Loks hafi henni tekist að komast fram úr herberginu og ákærði hafi á endanum hleypt henni út úr íbúðinni. Hún hafi í kjölfarið óskað eftir aðstoð frá lögreglu.

Framburður brotaþola trúverðugur

Ákærði neitaði alfarið að hafa brotið á brotaþola fyrir héraðsdómi. Í niðurstöðum héraðsdóms segir hins vegar að framburður ákærða hafi hvorki verið stöðugur né í samræmi við gögn málsins. Framburður brotaþola hafi hins vegar verið stöðugur og trúverðugur frá upphafi rannsóknar. 

Héraðsdómur taldi þó á grundvelli dómaframkvæmdar að ekki hafi verið um fullframið nauðgunarbrot að ræða enda hafi ákærða ekki tekist að stinga fingri „fyllilega inn í leggöng brotaþola,“ eins og það er orðað í niðurstöðum héraðsdóms. Brotið teljist því tilraun til nauðgunar.

Ákærði var dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi og þarf hann því ekki að sitja inni, haldi hann almennt skilorð. Honum ber að greiða brotaþola 800 þúsund krónur í miskabætur og tæpar fjórar milljónir í sakarkostnað til ríkissjóðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×