Lyfið kemur í pilluformi og sem er sérstakt að mörgu leyti enda hafa flest lyf gegn kórónuveirunni hingað til verið gefin í æð.
Paxlovid er talið hafa allt að 90 prósent virkni gegn alvarlegum veikindum og sérfræðingar telja það einnig reynast vel gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar.
Stella Kyriakides, yfirmaður heilbrigðismála hjá ESB, segir lyfið lofa góðu enda geti einstaklingar hæglega innbyrt lyfið heima fyrir. Það geti jafnvel skipt sköpum. Reuters greinir frá.
Lönd á borð við Ítalíu, Þýskaland og Belgíu hafa nú þegar keypt lyfið en Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna gaf leyfi fyrir notkun lyfsins í desember á síðasta ári. Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa gert slíkt hið sama.