Skoðun

Stutt leið­rétting og á­minning til Finn­boga Her­mans­sonar

Bergsveinn Birgisson skrifar

Ekki linnir því ómálefnalega hvað varðar mínar ásakanir á hendur Ásgeiri Jónssyni, sem voru rökstuddar með greinargerð af minni hendi hér á Vísi. Nú tekur Finnbogi Hermannson sig til, og ásakar mig um ritstuld úr „sinni“ bók, Einræður Steinólfs í Ytri-Fagradal, sem kom út hjá Þjóðsögu árið 2003. Þetta á ég að hafa gert í skáldsögu minni Svar við bréfi Helgu sem kom út árið 2010. Mætti minnast orðtaksins forna, að nú eru flestir sótraftar á sjó dregnir.

Þar sem Finnboga láist að gera nokkra grein fyrir málinu, er best að byrja á því, eins og ég reyndar gerði honum grein fyrir árið 2010 þegar hann bar þetta á mig fyrst, en hann hefur að því er virðist gleymt.

Í fyrsta lagi var það ekki Finnbogi Hermannsson sem gekk endanlega frá bókinni til prentunar fyrir Þjóðsögu, heldur Páll Valsson sem nú starfar hjá Bjarti. Þar nýtti Páll til dæmis bréf og skriftir Steinólfs sjálfs. Þar í sínum skrifum segir Steinólfur frá Snorraskjólum, þar sem konum slakna skaut. Orðin hef ég þó ekki úr bókinni, heldur beint úr frásagnargleði Steinólfs frænda míns sjálfs, þar sem ég var svo lánsamur að fá að vera húsgangur á hans bæ í mínum ungdómi. Sú saga, með þessu orðalagi, var mér sögð löngu áður en Finnbogi heyrði hana.

Sá sem á umrædd orð var nefnilega gæddur nokkru sem Finnbogi Hermannsson hefur farið á mis við, en það er frumleg hugsun. Bera orðin sjálf því vitni af hvers rótum renna. Kröfu Finnboga um eignarrétt á orðum Steinólfs mætti helst líkja við það, að ef einhver sem tæki þátt í að gefa út ljóð Einars Benediktssonar myndi eigna sér ljóð Einars Benediktssonar.

Þá er því grautað saman að hér var um skáldsögu af minni hendi að ræða, og ekki fræðirit. Af gefnu tilefni minni ég þó á að ég gat einmitt Steinólfs í Fagradal í athugasemdum aftast í bókinni, sem einum af þeim góðu sagnabrunnum sem ég sótti í. Er það reyndar fremur sjaldgæft að gert sé í skáldsögum.

En úr því að Finnbogi Hermannsson vekur málið upp, er óhjákvæmilegt að geta þess hvernig hann sjálfur hefur komið fram gagnvart þessum látna frænda mínum og afkomendum hans. Þannig var mál með vexti að útgáfan Þjóðsaga var lögð niður nokkrum árum síðar, svo enginn var til að reka rétt þeirrar útgáfu. Það nýtti Finnbogi sér, og tók handritið að bók Steinólfs án þess að spyrja nokkurn mann og gaf sjálfur út árið 2019. Þar gætti Finnbogi þess að setja aðeins nafns sjálfs sín bakvið copyright-merkið, og er þar um hinn eina sanna stuld að ræða og mæli sá maður armastur. Var það gert í óþökk afkomenda Steinólfs og án þeirra samþykkis, sem hljóta þó að teljast hinir réttmætu eigendur að verki hans.

Höfundur er rithöfundur og fræðimaður.


Tengdar fréttir

Stolið og rangfært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson

Út er komin bókin Eyjan hans Ingólfs (héreftir EHI) eftir Ásgeir Jónsson. Útgefandi er Almenna bókafélagið (2021). Höfundur er með doktorsgráðu í hagfræði og var deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Höfundur starfar nú sem seðlabankastjóri Íslands.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×